Upplýsingar
Byggt 2024
83,7 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Sameiginl. inngangur
Lyfta
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Orkureitur A íbúð 310 íbúð 03-10 er glæsileg 3 herbergja, 83,7 fm horníbúð. Svalir í suðaustur með útsýni yfir garðinn.NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Kári Sighvatsson lögfr. og löggiltur fasteignasali í síma 899-8815, kari@eignamidlun.is - Bókið einkaskoðun hjá sölumanni.
Eignamiðlun og Safír byggingar ehf kynna með stolti nýjar eignir við Dalsmúla 1-3 í glæsilegu lyftuhúsi á Orkureitnum, sannkölluðum sælureit við Laugardalinn. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar með vönduðum Nobilia Innréttingum frá GKS, flísalögðum baðherbergjum en án megingólfefna.
Smellið hér fyrir heimasíðu verkefnisins
Smellið hér til að sækja söluyfirlit
Orkureitur A íbúð 310 , íbúð 03-10 er 83,7 fm 3 herbergja íbúð í nýju glæsilegu lyftuhúsi á einstaklega góðum stað rétt við Laugardalinn.
Opinber skráning eignarinnar: Birt flatarmál er 83,7 fm, með 11,1 fm geymslu í sameign.
Afhending íbúðanna: Íbúðin er tilbúin til afhendingar við kaupsamning.
Myndir eru af sambærilegri sýningaríbúð.
Nánar um Orkureitinn:
Bjartar og vel hannaðar íbúðir
Á Orkureitnum verða byggðar 436 glæsilegar íbúðir þar sem lögð er alúð við að byggja upp framtíðarheimili þar sem vellíðan íbúa er höfð að leiðarljósi. Við hönnun íbúða er lögð megináhersla á vönduð byggingarefni, hagnýtt skipulag, góða birtu og útsýni. Hver íbúð hefur eigin búnað til loftskipta sem hámarkar loftgæði. Stórt bílastæðahús er tengt byggingum neðanjarðar en auk þess eru verslunar- og þjónusturými á jarðhæð með fjölbreyttri þjónustu við íbúa eins og veitingahús og kaffihús. Áformað er að afhenda fyrstu íbúðir haustið 2024 og að allri uppbyggingu á svæðinu verði lokið í lok árs 2027.
Framtíðarheimili á Orkureitnum
Orkureiturinn er skipulagður og hannaður með sjálfbærni og vistvæn sjónarmið að leiðarljósi. Sérstök áhersla er lögð á endurnýtingu orku og blágrænar ofanvatnslausnir. Á byggingartíma er lögð áhersla á endurvinnslu byggingarefnis, jarðvegs og gróðurs á svæðinu. Skipulag reitsins er það fyrsta í Reykjavík sem vottað er af BREEAM Communities vistvottunarkerfinu og hefur það fengið næsthæstu einkunn, sem er „Excellent“.
Allt hverfið í kringum Orkureitinn er í mikilli uppbyggingu. Staðsetningin er í miðju verslunar- og þjónustukjarna í Skeifunni, Glæsibæ og Múlunum, svæði sem er miðsvæðis í þróunarás Reykjavíkurborgar við væntanlega Borgarlínu.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook