Lýsing
Birtar stærðir skv. HMS: Íbúðin er 96,9 fm og geymslan er 9,1 fm ásamt 35,9 fm bílskúr, samtals 141,9 fm að stærð. Lóð: Sérafnotaflötur 2 (255,8 fm), sjá mynd, sem er merktur S2 á afstöðumynd tilheyrir íbúðinni. Á honum standa gróðurhús (8,12 fm), pallur og skjólveggir.
SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT OG ALLAR FREKARI UPPLÝSINGAR
Nánari lýsing eignar: Komið er inn í forstofu og frá forstofu tekur við gangur. Á vinstri hönd er svefnherbergi með fataskáp og innaf herberginu er innangengt í sameignina þar sem er sameiginlegt þvottahús og geymsla með hillum. Rúmgóð stofa með útgangi út á timburpall og þaðan út í mjög fallegan garð sem er í mikilli rækt, gróðurhús. Fallegt útsýni frá timburpalli. Hjónaherbergi með nýlegum fataskáp. Eldhús með hvítri innréttingu, flísar á milli efri og neðri skápa, borðkrókur. Flísalagt baðherbergi í hólf og gólf, gluggi á baði, sturta, upphengt salerni og handklæðaofn. Gólfefni íbúðar: parket og flísar á gólfum. Bílskúrinn er skráður 35,9 fm og er hann með millilofti að hluta til, gólfhita, sjálfvirkum hurðaopnara og snyrtingu.
Frábær staðsetning í suðurhlíðum Kópavogs, stutt er í skóla, leikskóla, íþróttir, verslun og aðra þjónustu.
Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@landmark.is
Umsagnir viðskiptavina HÉR
Fylgdu mér á Facebook
Fylgdu mér á Instagram
Pantaðu FRÍTT söluverðmat á www.frittsoluverdmat.is
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat