Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Benedikt Ólafsson
Sveinbjörn Rosén Guðlaugsson
Eggert Maríuson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2021
svg
100,6 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Mjög fallega og vel skipulagða 100.6 fm. 3ja herbergja íbúð á 4 hæð er í nýlegu lyftuhúsi með stórum og skjólgóðum svölum með útsýni út á höfnina og Álftanesið, ásamt rúmgóðu bílastæði í lokaðri bílageymslu við Hafnarbraut 12G á Kársnesinu í Kópavogi.
Íbúðin er skráð 100,6 fm. og þar af 8,2 fm. geymsla. Hafnarbraut 12G, 200 Kópavogur, nánar tiltekið eign merkt 04-08, fastanúmer 251-0888 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 100,6 fm.  Eignin er vel skipulögð á besta stað á Kársnesi, stutt er í skóla, sundlaug, íþróttaaðstöðu og aðra fjölbreytta þjónustu.


*Smelltu hér til að skoða myndband um eignina*


"Laus fljótlega eftir kaupsamning"

- Vandað og viðhaldslétt lyftuhús á vinsælum stað á Kársnesinu.
- Dyrasími með myndavél, ljósleiðari er komin inn í íbúðina. 
- Búið er að leggja rafleiðslur fyrir hleðslustöð í bílageymslu. 
- Falleg eign fyrir vandláta á eftirsóttum stað í Kópavogi. 


*Smelltu hér til að sækja söluyfirlit*

Sýningu á eigninni annast Benediklt Ólafsson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.661-7788 eða með tölvupósti: bo@stofnfasteignasala.is.
Tinna Bergmann í löggildingu fasteignasala, í síma 869-3675, netfang tinna@stofnfasteignasala.is



Eignin skiptist í: Forstofu, eldhús, borðstofu og stofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi og stórar skjólgóðar svalir, geymsla og stæði í bílgeymslu.

Lýsing eignar:
Forstofa: 
er mjög björt og rúmgóð með tví skiptu gólfefni þar sem einstaklega fallegar flísar eru á votrýminu ( framan fataskápa ) og ljósu harðparketi, þrefaldur fataskápur sem nær upp í loft og fallegum glugga sem birtir yfir forstofuna og alrýmið. 
Baðherbergi: er rúmgott með stórar fallegar gráar flísar á gólfi og á veggjum í votrými. Hvít rúmgóð innrétting með handlaug, stór speglaskápur á vegg fyrir ofan handlaug. Innan baðherbergis er tengi fyrir þvottavél og þurrkara með góða innréttingu/ handklæðaskáp. Opnanlegur gluggi og handklæðaofn er á vegg. 
Eldhús: er með rúmgóða hvíta innréttingu með fallegum flísum á milli efri og neðri skápa, efri skápar ná upp í loft. Eyja með góða vinnu og eldunaraðstöðu, gufu gleypir og span helluborð. Bakarofn í vinnuhæð og ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð í innréttinguna.
Stofa/ borðstofa: er bjart og samlyggjandi með eldhúsinu, gólf síðir gluggar í stofunni, harðparket á gólfi.
Svalir: frá stofu er útgengt á stórar og skjólgóðar svalir með útsýni út á sjó og Álftanesið sem snúa til vesturs. 
Hjónaherbergi: er rúmgott með góðum fataskápum, harðparket á gólfi.
Svefnherbergi: er með fallegum gluggum á tvo vegu, harðparket á gólfi.
Stæði í bílageymslu: Sér bílastæði mjög nálægt inngangi, merkt E20 fylgir í lokaðri bílageymslu.
Geymsla: Sér geymsla innan sameignar fyrir framan stæði í bílageymslu.  
Sameign: Snyrtileg sameign og stigagangur, tvennar sameiginlegar vagna- og hjólageymslur. 

Húsið er staðsett á vinsælum stað í vesturbæ Kópavogs. Brikk bakarí og Brasserie Kársnes eru í næsta húsi. Heillandi umhverfi við sjávarsíðuna með fallegri náttúru og fjölbreyttum afþreyingarmöguleikum, fallegar gönguleiðir. Örstutt frá sjónum og í göngufæri við Sky lagoon böðin.

Ert þú að fara selja og vantar þig trausta og metnaðarfulla fasteignasala með reynslu og þinn hag í fyrirrúmi?  Þá er okkar heiðurinn að vera fasteignasalinn þinn og þinna! Vantar allar tegundir fasteigna á skrá vegna aukinnar sölu! 
" Við höfum Heilindi - Dugnað - Árangur að leiðarljósi".



Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður. 
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

STOFN Fasteignasala ehf.

STOFN Fasteignasala ehf.

Lyngási 11, 210 Garðabæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
4. nóv. 2021
24.750.000 kr.
62.900.000 kr.
100.6 m²
625.249 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
STOFN Fasteignasala ehf.

STOFN Fasteignasala ehf.

Lyngási 11, 210 Garðabæ