












Lýsing
Miklaborg kynnir: 4ra herbergja íbúð á annarri hæð með bílskúr vel staðsett í Háaleitishverfinu í Reykjavík. Íbúðin er 110,2 fm með bílskúr sem er 25,4 fm. Íbúðin getur verið laus tiltölulega fljótt.
Íbúðin er með þremur svefnherbergjum, stofu þaðan sem útgengt er á svalir er snúa í vestur og baðherbergi með sturtuklefa og með stæði og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Eldhús með góðri innréttingu, flísum á gólfi. Sameiginlegt þvottahús í sameign og sérgeymsla íbúðar í kjallara sameignar ásamt sameiginlegu þvottahúsi.
Bílskúr er rúmlega 25 fm að stærð með nýrri innkeyrsluhurð með fjarstýrðum hurðaopnara. Bílastæði fyrir framan. Við sameiginlegu bílastæðum hússins er komin hleðslustöð sem hægt er að fá aðgang að.
Húsið er álklætt og þ.a.l. tiltölulega viðhaldslétt.
Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn Valdimarsson lögg. fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is