Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Elín Káradóttir
Hrönn Bjargar Harðardóttir
Kristín Rós Magnadóttir
Vista
raðhús

BLÁARGERÐI 14B

700 Egilsstaðir

79.900.000 kr.

564.664 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2506138

Fasteignamat

69.450.000 kr.

Brunabótamat

61.050.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2019
svg
141,5 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

BYR fasteignasala kynnir í einkasölu BLÁARGERÐI 14B, 700 Egilsstaðir. Fjögurra herbergja endaraðhús með innbyggðum bílskúr.
Smellið hér fyrir staðsetningu. 

Húsið er timburhús, byggt árið 2019 með innbyggðum bílskúr. Húsið skiptist í íbúð 108.7 m² og bílskúr 32.8 m², samtals 141.5 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Forstofa, gangur, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymsla, bílskúr.

Nánari lýsing: 
Forstofa með tvöföldum fataskáp. 
Gangur er innan við forstofu, liggur að öðrum rýmum eignarinnar. Lúga er upp í þakrými frá gangi, geymslurými.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, útgengt er frá eldhúsi út á timburverönd og aflokaðan garð. 
Eldhús, hvít innrétting með eyju, pláss fyrir þrjú sæti við eyju, spanhelluborð ofn og örbylgjuofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur fylgja. 
Þrjú svefnherbergi. 
Hjónaherbergi, fjórfaldur fataskápur. 
Barnaherbergi, tvöfaldur fataskápur í báðum herbergjum. 
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni, vaskinnrétting og skápur, og sturta, handklæðaofn, gluggi og öndunartúða. 
Þvottahús og geymsla saman í rými, flísar á gólfi. Innangengt er úr þvottahúsi í bílskúr, rafræn loftun er úr þvottahúsi. 
Bílskúr, flísar á gólfi. Bílskúrshurðaopnari. Milliloft er yfir aftasta hluta í bílskúr, loft er upptekið í bílskúr, vaskur. Rafmagnstafla og gólfhitagrind eru í bílskúr, þriggja fasa rafmagn.
Gönguhurð er í bílskúr við aðalinngang hússins. 
Gólfefni: Harðparket er á alrými, gangi og svefnherbergjum. Flísar eru á forstofu, baðherbergi, þvottahúsi og geymslu, bílskúr. 
Gólfhiti er í eigninni. Danfoss stýringar á veggjum. Upptekið loft og innbyggð lýsing er í alrými. Vegghengdur skápur á gangi og í borðstofu fylgir með.  

Húsið Bláargerði 12-14 samanstendur af fjórum raðhúsaíbúðum. Bláargerði 14B er endaraðhús með innbyggðum bílskúr. Húsið er timburhús á einni hæð klætt að utan með liggjandi báruklæðningu. Timbur hurðar og gluggar. Bárujárn á þaki. Lóð er grasi gróin, timburverönd er aftan við húsið endilangt, timburveggur er á milli húsa. Möl er í aðkomu og bílaplani, hellulagt er við inngang hússins, sorptunnuskýli fyrir þrjár tunnur. Lóð er sameiginleg 1364,0 m² leigulóð í eigu Múlaþings.

Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 250-6138.

Stærð: Raðhús 108.7 m². Bílskúr 32.8 m². Samtals 141.5 m².
Brunabótamat: 61.050.000 kr.
Fasteignamat: 69.450.000 kr.  
Byggingarár: 2019
Byggingarefni: Timbur


ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - byr@byrfasteignasala.is 
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is
Sigurbjörg Halla Sigurjónsdóttir, löggiltur fasteignasali - silla@byrfasteignasala.is

Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.        
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi -  0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga  / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

www.byrfasteign.is |  Austurmörk 7, 810 Hveragerði - Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala

Byr fasteignasala

Byr fasteignasala

Austurmörk 7, 810 Hveragerði
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
24. nóv. 2022
43.900.000 kr.
54.000.000 kr.
141.5 m²
381.625 kr.
11. des. 2019
36.050.000 kr.
41.890.000 kr.
141.5 m²
296.042 kr.
22. ágú. 2019
3.030.000 kr.
27.000.000 kr.
141.5 m²
190.813 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byr fasteignasala

Byr fasteignasala

Austurmörk 7, 810 Hveragerði