Upplýsingar
168,9 m²
5 herb.
2 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Lýsing
Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Tjarnabraut 34, 260 Reykjanesbær.
Um er að ræða 168,9 fm einbýlishús með bílskúr á góðum stað í Njarðvík.
Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 168,90 m², þar af er íbúðarrými 146,0 m² og innbýgðum bílskúr 22,90 m².
Eignin skiptist í anddyri, fjögur svefnherbergi, fataherbergi, tvö baðherbergi, eldhús, stofu, borðstofu, þvottahús og bílskúr.
Nánari lýsing:
Komið er inn í anddyri með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Eldhús, stofa og borðstofa eru í opnu björtu rými, parket á gólfi, úr stofunni er útgengi út á verönd.
Innrétting í eldhúsi er frá HTH, og heimilistæki frá AEG, þar er innbyggt helluborð, háfur, ofn og uppþvottavél.
Svefnherbergin eru fjögur talsins, öll parketlögð, Hjónaherbergi er rúmgott, þar er fataherbergi.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi, sturtu með sturtuskilrúmi úr gleri á eina hlið, upphengt salerni og góða innréttingu.
Gestasalerni hefur flísar á gólfi, sturtu, upphengt salerni, innrétting og LED spegil.
Þvottahús hefur flísar á gólfi, góð innrétting með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Bílskur hefur Epoxy-gólf og bílskúrshurð með rafmagnsopnun. Rafmagns-ídráttarrör fyrir rafbílahleðslu er við hlið bílskúrshurðar.
Byggingarlýsing:
Úti:
Eignin er staðsteypt á hefðbundinn hátt. Útveggir eru einangraðir að utan með steinull og klæddir með stallaðri álklæðningu sem fest er á ál-undirkerfi. Gluggar og útihurðir eru úr timbri/áli, dökkgráir að utan og hvítir að innan. Opnanleg fög eru útbúin viðurkenndum stormjárnum fyrir örugga rýmingu um björgunarop. Allir gluggar eru með tvöföldu einangrunargleri. Þak er uppbyggt með tveimur lögum af bræddum þakpappa, takkadúk þar yfir, tvöfaldri 10 cm einangrun, jarðvegsdúk og að lokum fargi (t.d. möl eða sambærilegt steinefni). Öll niðurföll frá þaki eru tengd við fráveitukerfi bæjarins. Sökklar og botnplata eru úr staðsteyptri, járnbentri steinsteypu. Undir botnplötu er plasteinangrun og utan á sökkla er steinullareinangrun.
Inni:
Í loftum er innfelld LED lýsing. Eignin er með tengjum fyrir tölvu og síma ásamt hitastilli í hverju rými fyrir gólfhitakerfi. Eignin er með loftskiptikerfi með varmaendurvinnslu frá FIT Agix sem samkvæmt framleiðanda tryggir allt að 40% orkusparnað. Útveggir eru pússaðir eða slípaðir, sandsparslaðir, grunnaðir og málaðir með tveimur yfirferðum af plastmálningu (gljástig 7% eða sambærilegt). Léttir innveggir eru hlaðnir úr léttstein, sandsparslaðir, grunnaðir og málaðir með tveimur yfirferðum af plastmálningu (gljástig 7% eða sambærilegt). Loft eru sandspörsluð, grunnað og máluð með tveimur yfirferðum af plastmálningu (gljástig 2 eða sambærilegt). Loft og veggir í votrýmum (baðherbergi og þvottahús) eru máluð með viðurkenndri votrýmismálningu.
Lóð og aðkoma:
Innkeyrsla verður steypt með snjóbræðslukerfi. Rafmagns-ídráttarrör fyrir rafbílahleðslu er við hlið bílskúrshurðar. Lóð verður tyrfð. Sólpallur verður timburklæddur, um 60 m² að stærð. Heitur pottur verður uppsettur og fullbúinn til notkunar. Sorpskýli verður steypt og staðsett innan lóðarmarka.
Ljósmyndir eru af Tjarnabraut númer 30. Fyrir hús númer 28 og 34 hafa kaupendur möguleika á að velja lit á innréttingum, parketi og hurðum eftir eigin óskum. Eignin skilast fullbúin á byggingarstigi 4, matsstigi 7.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50 eða á netfanginu es@es.is og í síma 420-4050
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignamiðlun Suðurnesja bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.