Lýsing
Arkitektar: THG arkitektar
Verktaki: JE Skjanni ehf.
Skoða heimasíðu verkefnisins við Pollinn
Íbúðin er samtals 81,9fm., þar af er geymsla 6,1fm.
Íbúðin:
Komið er inn í opið anddyri með skáp á hægri hönd. Opið eldhús, eldhúseyja með kvarts stein og span helluborði. Skúffur og skápar í eldhúsinu eru allar með ljúflokum. Eldhúsinnrétting með kvarts stein, bakaraofn, innfelldur vaskur. Allar skúffur og skápar með ljúflokum. Innfelld lýsing frá Lumex.
Fyrir framan eldhúseyjuna er stofa/borðstofa, útgengt út á svalir til suðausturs með glæsilegu útsýni yfir pollinn.
Hjónaherbergi með góðum skáp.
Barnaherbergi með skáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Sturta með glerskili. Falleg innrétting frá Parka, kvarts steinn á borðplötu. Upphengt salerni. Skápur fyrir þvottavél og þurrkara, borðplata úr kvarts stein.
Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir íbúðinni.
Allar innréttingar, innihurðir, skápar og Electrolux eldhústæki eru frá Parka. Blöndunar- og hreinlætistæki eru frá Tengi.
Íbúðinni er skilað fullbúinni en án gólfefna.
Sameign er með glæsilegra móti.
Komið er inn í rúmgott anddyri. Stórar ljósakrónur og lýsing frá Lumex gefa fallega birtu.
Flísar á gólfi frá kjallara og upp á pall fyrstu hæðar. Frá fyrstu hæð eru stigagangarnir teppalagðir.
Innangengt úr hverjum stigagangi niður í lokaða bílageymslu og þaðan inn á hótelið sem verður opnað 2026.
Inngangur um bílageymslu í hótelið er einungis fyrir íbúðareigendur og hótelgesti.
Eigninni er skilað skv. skilalýsingu verktaka.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati þegar það leggst á eignina.
ATH: myndir af íbúðinni eru af svipaðri íbúð.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Sölumenn Helgafells fasteignasölu
Sími: 566 0000
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 79.980,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.