Upplýsingar
Byggt 2000
95 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Lýsing
Garðatorg eignamiðlun, sölumaður Sigurður s. 8983708:
Mjög snyrtileg og björt 3ja herbergja íbúð á frábærum stað með fallegu útsýni á annarri hæð í litlu tveggja hæða fjölbýlishúsi. Íbúðin er 95 fermetrar að stærð sem býður upp á bjart og notalegt rými með góðu innra skipulagi og fallegu útsýni.
Nánari lýsing:
Stofa: Rúmgóð og björt stofa með góðum gluggum og fallegu útsýni. Útgengt er á suðvestursvalir.
Eldhús: Rúmgott og bjart eldhús, hálfopið inn í stofu. Viðar- eldhúsinnrétting, góður borðkrókur.
Svefnherbergi: Tvö svefnherbergi með fataskápum, bæði björt og rúmgóð.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með bæði baðkari og sturtuklefa. Góð innrétting og gluggi.
Þvottahús: Sér þvottahús innan íbúðar með hillum, flísar á gólfi og veggjum.
Anddyri: Komið er inn í anddyri með fataskáp.
Gólfefni eru viðar-parket á íbúðarrýmum og flísar á votrýmum.
Annað:
Rúmgóð sérgeymsla á fyrstu hæð.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Sameign mjög snyrtileg og vel við haldið.
Góð aðkoma og næg bílastæði við húsið. Sameignileg raf-hleðslustöð
Staðsetning: Íbúðin er á rólegum og eftirsóttum stað. Stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla og samgöngur.
Nánari upplýsingar veitir: Sigurður Tyrfingsson
Löggiltur fasteignasali
Sími: 898-3708
Netfang: sigurdur@gardatorg.is
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því Garðatorg eignamiðlun skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð