Opið hús: Skyggnisholt 12, 190 Vogar, Íbúð merkt: 01 02 04. Eignin verður sýnd sunnudaginn 11. maí 2025 milli kl. 15:00 og kl. 15:30. Hlökkum til að sjá ykkur Díana s.895-9989 og Hulda s.771-2528
Lýsing
Glæsilega 4ra herbergja íbúð með sérinngangi og sérverönd/svölum við Skyggnisholt 12 í Vogum á Vatnsleysuströnd.
Húsið er klætt að utan, á tveimur hæðum og með sérinngang, alls 8 íbúðir eru í húsinu.
Samkvæmt Hms er stærð 106.6 fm. íbúð er á 2.hæð með sérinngangi.
Fá söluyfirlit
Forstofa er flísalögð með skápum.
Eldhús og stofa í björtu alrými með útg. á svalir.
Þrjú rúmgóð svefnherbergi með skápum, parket á gólfi.
Baðherbergi með walk-in sturtu, innrétting með handlaug, handklæðaofn og stæði fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er innan íbúðar.
Samkvæmt seljanda:
Innréttingar og skápar eru frá HTH Ormsson, bakarofn, keramik helluborð, eyjuháfur/veggháfur(kolasíu) frá Gorenje. Harðparketi er á gólfum fyrir utan votrými sem eru flísalögð. Gluggar eru ál-trégluggar frá Byko. Tvöfalt hefðbundið verksmiðjuframleitt K-gler.
Lóðin er fullfrágengin, gönguleiðir að stigahúsi eru hellulagðar og með hita, tröppur með hita. Bílastæði malbikuð og hleðslustöð fyrir tvo bíla á bílastæði sem er í sameign. Dýrahald leyft.
Frábær staðsetning í Vogunum sem er ört stækkandi og vinsælt sveitafélag.
Komin er verslun á svæðið og veitingarstaður sem er í 5 mínútna göngufjarlægð auk þess sem gert er ráð fyrir verslunar-og þjónustukjarna í næstu götu.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður