Upplýsingar
Byggt 1970
208,6 m²
6 herb.
2 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Opið hús: 6. maí 2025
kl. 17:30
til 18:00
Lýsing
NADIA KATRÍN LGF OG DOMUSNOVA KYNNA : EIGNIN VERÐUR EKKI SELD FYRIR OPIÐ HÚS. RÚMGOTT 208,6FM EINBÝLISHÚS Á EINNI HÆÐ. ÞAR AF 55,8FM TVÖFALDUR BÍLSKÚR. FJÖGUR SVEFNHERBERGI, SKJÓLGÓÐUR GARÐUR, HITAVEITUSKEL, ARIN Í STOFU, 972FM LÓÐ
Nánari upplýsingar veita:
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Nadia Katrín Banine löggiltur fasteignasali / s.692 5002 / nadia@domusnova.is
Lýsing eignar:
Komið er inn í flísalagða forstofu með fataskápum. Inn af forstofu er gesta salerni með hvítri innréttingu og glugga. Úr forstofu er gengið inn í flísalagt opið rými sem tengir saman eldhús, borðstofu, arinstofu og sjónvarpshol. Úr stofu er útgengi út á steypta verönd. Eldhúsið er flísalagt með eldri innréttingu og góðum borðkrók. Tveir inngangar eru í eldhúsið og tengja þeir saman rými sem notuð eru sem borðstofa og sjónvarpsrými. Gert er ráð fyrir fjórum svefnherbergjum í húsinu, en búið er að opna á milli tveggja herbergja. Fataskápar eru í öllum herbergjum og er hjónaherbergið með útgengi út á verönd. Svefnherbergis gangurinn tengir saman svefnrýmin í húsinu og baðherbergið sem er flísalagt, með upphengdu salerni, sturtu og hornbaðkari. Þvottahúsið er með útgengi út á bílaplan við tvöfaldan bílskúr. Inn af þvottahúsi er lagnaherbergi sem nýtist vel sem þurrk herbergi. Kaldavatnslagnir í eldhúsi hafa verið endurnýjaðar og flestar ofnalagnir. Skemmtileg eign með góða lofthæð á 972fm lóð með mikla möguleika í rólegri götu í Garðabæ.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.