Freyja Rúnarsdóttir, lögg. fasteignasali s: 694-4112, freyja@landmark.is tekur á móti áhugasömum þriðjudaginn 3. júní nk., milli kl. 17:00 og 17:30.
Lýsing
Einbýlishús á einni hæð ásamt bílskúr í grónu og fallegu hverfi í Garðabæ. **4 rúmgóð svefnherbergi. **Stór bílskúr sem hægt er að keyra í gegnum, innkeyrsla fyrir nokkra bíla. **Hellulagður garður með fallegum gróðri sem búið er að hugsa vel um í gegnum árin.**Húsið er skráð 180,2 fm en er í raun um 226,2 fm.
Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 180,2 fm og skiptist þannig að íbúðarhlutinn er 148,2 fm og bílskúr 32 fm, samtals 180,2 fm. Eignin er stærri en skráðir fermetrar segja til um en stofan hefur verið stækkuð um ca 20 fm þar sem áður var sólskáli sem eru ekki inní birtri stærð og bílskúrinn var stækkaður um 26 fm sem er ekki inní birtri stærð og er því raun 58 fm. Eignin er því í raun um 226,2 fm.
Allar nánari upplýsingar veitir Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali í síma 694-4112 eða freyja@landmark.is
Húsið samanstendur af forstofu, fjórum rúmgóðum svefnherbergjum, hol sem er nýtt sem borðstofa, úr holi er gengið niður tvö þrep í stóra stofu með útgengt í suðurgarð, rúmgott eldhús með innangengt í þvottahús með salerni og þaðan er einnig útgengt út á suðurverönd, baðherbergi og stór bílskúr.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa er með fataskápum og flísum á gólfi.
Hol er mjög rúmgott, nýtt sem borðstofa, harðparket á gólfi.
Stofa er mjög rúmgóð með harðparket á gólfi, (ca 20 stærri en upphaflegar teikningar segja til um), útgengt á skjólgóða verönd og þaðan út í garð.
Eldhús er með góðri innréttingu og borðkrók, keramik helluborð, bakaraofn í vinnuhæð, tengi fyrir uppþvottavél og er gert ráð fyrir amerískum ísskáp í innréttingu. Dúkur á gólfi.
Fjögur mjög rúmgóð herbergi með parket á gólfi, tvö þeirra með fataskáp.
Baðherbergi með flísum á gólfi og fibo baðplötum á veggjum, baðkar og sturtuklefi, góð innrétting og innbyggðar hillur með lýsingu. Opnanlegur gluggi og hiti í gólfi.
Þvottahús er innaf eldhúsi, rúmgott með vaski, salerni og flísum á gólfi, útgengt á verönd. Geymsluloft yfir hluta þvottahúss.
Bílskúr er mjög rúmgóður með 3ja fasa rafmagni og heitu og köldu vatni, hægt er að keyra út um hann á bakvið hús þar sem er hellulagt plan. Innkeyrsla fyrir nokkra bíla, lýsing í vegg meðfram innkeyrslu. Bílskúrinn hefur verið stækkaður um 26 fm.
Garðurinn er hellulagður og með fallegum gróðri sem vel hefur verið hugsað um í gegnum árin.
Áætlað fasteignamat fyrir árið 2026 er 132.050.000kr.
Allar nánari upplýsingar veitir Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali í síma 694-4112 eða freyja@landmark.is
___________________________________________________________________________________________
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat