Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2021
184,2 m²
4 herb.
2 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Bílastæði
Lyfta
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
**Bókið skoðun hjá Brynjari í síma 896-1168 eða brynjar@eignamidlun.is**Glæsileg 184,2 fm fjögurra herbergja íbúð á þriðju hæð með fallegu útsýni í nýlegu lyftuhúsi við Naustavör. Stæði fylgir í bílageymslu. Hvergi hefur verið sparað við efnisval íbúðarinnar. Vandaðar innréttingar, Fallegur steinn á eyju og baðherbergjum. Gólfsíðir gluggar og gólfhiti.
Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 184,2m², flatarmál íbúðarrýmis er 151,1m² og flatarmál geymslu er 33,1m².
Eignin skiptist í anddyri, alrými með stofu og opnu eldhúsi, hjónasvítu með fataherbergi og baðhergbergi innaf, tvö önnur svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Stæði í bílageymslu er í kjallara ásamt rúmgóðri geymslu innaf stæðinu.
Smellið hér til að fá söluyfirlit sent strax
Anddyri: Parketlagt með rúmgóðum skápum.
Stofa/eldhús: Stofan og eldhúsið eru í opnu alrými þaðan sem útgengt er á svalir sem snúa beint að sjó með frábæru útsýni til sjávar og fjalla. Eyja með helluborði. Vínkælir í eyju. Góð lofthæð er í stofunni. Til suðurs eru svalir sem snúa inní garðinn. Falleg lýsing í lofti.
Hjónasvíta með fataherbergi og baðherbergi, frístandandi baðkar, innbyggð blöndunartæki. Fallegur steinn á veggjum og handlaug.
Herbergi II er rúmgott og með góðu skápaplássi.
Herbergi III er einnig rúmgott, er við hliðina á stofu og snýr að sjó.
Baðherbergi með sturtu. Mjög fallegt baðherbergi með innbyggðum blöndunartækjum við sturtu. Mjög fallegur steinn á veggjum í sturtuklefa og í handlaug.
Sér þvottahús með góðri innréttingu og skolvask.
Gott bílastæði í bílageymslu fylgir íbúðinni. Innaf stæðinu er stór geymsla. Rafbílahleðslustöð er við bílastæðið.
Mjög fallegt parket er á allri íbúðinni allri fyrir utan baðherbergin og þvottahús.
Nánari uppl.
Brynjar Þór Sumarliðason löggiltur fasteignasali í síma 896 1168 - brynjar@eignamidlun.is
Kjartan Hallgeirsson löggiltur fasteignasali í síma 824 9093 - kjartan@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
8. nóv. 2024
134.300.000 kr.
208.000.000 kr.
10306 m²
20.182 kr.
7. apr. 2021
39.100.000 kr.
128.000.000 kr.
184.2 m²
694.897 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025