Opið hús: Flatahraun 1, 220 Hafnarfjörður, Íbúð merkt: 01 05 02. Eignin verður sýnd sunnudaginn 4. maí 2025 milli kl. 13:00 og kl. 13:30.
Lýsing
Björt og vel skipulögð 80,4 fm íbúð á efstu hæð við Flatahraun 1 í Hafnarfirði – með stórum suðursvölum og útsýni!
Um er að ræða tveggja herbergja íbúð á fimmtu og efstu hæð í góðu fjölbýlishúsi byggðu árið 2006. Íbúðin er 80,4 fm þar af 7,6 fm geymsla í kjallara og stæði í bílageymslu. Eigninni fylgir 34 fm hellulagðar þaksvalir sem snúa í suður, möguleiki að byggja yfir. Rúmgóð og björt eign með gólfsíðum gluggum í alrými og sér þvottahúsi innan íbúðar.
✅ Tveggja herbergja íbúð á efstu hæð með þaksvölum
✅ 34 fm hellulagðar suðursvalir með víðfemu útsýni
✅ Sér þvottahús innan íbúðar með innréttingu
✅ Gólfsíðir gluggar, parket og hvítar innréttingar
✅ Stæði í bílageymslu og 7,6 fm geymsla í kjallara
Nánari lýsing:
Forstofa: Parket á gólfi og hvítur fataskápur.
Alrými: Björt stofa og borðstofa með gólfsíðum gluggum og útgengi á stórar hellulagðar svalir sem snúa í suður.
Eldhús: Hvít innrétting með góðu skápaplássi, bakarofn, helluborð, háfur og tengi fyrir uppþvottavél og tvöfaldan ísskáp .
Svefnherbergi: Rúmgott svefnherbergi með parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni, sturta og baðinnrétting.
Þvottahús: Sér rými innan íbúðar, flísalagt gólf og hvít innrétting með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla & bílastæði: 7,6 fm geymsla í kjallara. Sérmerkt stæði í lokaðri bílageymslu.
Staðsetning
Eignin er staðsett við Flatahraun í Hafnarfirði, í þéttbyggðu hverfi þar sem þjónusta, verslun og fjölbreytt atvinnustarfsemi er innan seilingar.
Afhending
Eignin er tilbúin til afhendingar eftir samkomulagi.
Sækja HÉR söluyfirlit samstundis
Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar og skoðun:
Þórarinn Thorarensen, sölustjóri / s: 770-0309 / th@landmark.is
Júlíus Jóhannsson, löggiltur fasteignasali / julius@landmark.is
Monika Hjálmtýsdóttir, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur / monika@landmark.is
Láttu okkur sjá um söluna fyrir þig – við veitum þér faglega söluráðgjöf
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat