Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Vista
svg

90

svg

79  Skoðendur

svg

Skráð  2. maí. 2025

fjölbýlishús

Jöfursbás 5

112 Reykjavík

117.900.000 kr.

993.260 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2530340

Fasteignamat

93.100.000 kr.

Brunabótamat

80.360.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2024
svg
118,7 m²
svg
3 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

NÝJAR ÍBÚÐIR VIÐ HAFIÐ - Sýni samdægurs. Bókaðu skoðun í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is 

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir Jöfursbás 5A, Reykjavík - 3 herbergja endaíbúð íbúð 118,7fm. á þriðju hæð (efstu), þar af geymsla 6,0fm. (merkt 0018). Stæði merkt B001 fylgir íbúðinni í lokuðum bílakjallara.  Íbúðin er skemmtilega hönnuð með tveimur góðum svefnherbergjum og möguleiki á þriðja herberginu.  Tvö baðherbergi og annað þeirra innaf hjónaherbergi.  Gólfhiti í öllum gólfum íbúðar . Svalir til suðurs út frá stofu.  


Innanhúss hönnuður hefur komið að hönnun allra íbúða en í þeim má finna innréttingar sem eru sérsmíðaðar hjá VOKE-III, blöndunartæki eru frá Grohe og hreinlætistæki frá Duravit.  Quartz steinn frá Technistone er á eldhúsum og böðum.  Flísar á votrýmum og vandað parket á aðalflötum íbúðar er frá Ebson og eldhústæki frá AEG.

* aukin lofthæð 
* sérsmíðaðar innréttingar sem ná upp í loft.
* vönduð gólfefni
* gólfhiti
* gólfsíðir gluggar
* quartz steinn á borðum og undirlímdir vaskar
* snjóbræðslukerfi í göngustígum með fallegri næturlýsingu 
* spennandi umhverfisskipulag í nýju hverfi


Nánari lýsing íbúðar
Forstofa rúmgóð með stórum fataskáp 
Eldhús með eyju, góðu skápaplássi og innbyggð ísskápur, frystir og uppþvottavél.  Innrétting er vönduð með Quartz stein á borðplötum.
Stofa og borðstofa með góðum gólfsíðum gluggum .
Baðherbergi flísalögð 60x60cm ljósgráum flísum frá EBSON bæði gólf og hluti veggja, með vandaðri innréttingu með Quartz stein á baðinnréttingu frá Technistone.  Tenging fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu á baði.
Hjónaherbergi er rúmgott með vönduðum fataskáp og baðherbergi innaf hjónaherbergi.
Svefnherbergi rúmgott með fataskáp 
Þaksvalir 72fm. flísalagðar með glerhandrið og óbeinni lýsingu.  
Geymsla merkt íbúðinni í kjallara

Hjóla- og vagnageymsla í sameign
Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl
Hitalagnir í helstu gönguleiðum lóðar

Allir innviðir í hverfinu sterkir þ.m.t. skólar, leikskólar, verslanir og hvers konar önnur þjónusta í næsta nágrenni.


Íbúðirnar í húsinu eru samtals 26 talsins í tveimur stigahúsum, mjög fjölbreyttar 2-5 herbergja. Stærðir frá 55 fm-180 fm.  Næg stæði fyrir utan hús.

Hverfið:
Við Eiðsvík í Gufunesi er að rísa spennandi íbúðabyggð í gömlu iðnaðarhverfi sem nú hýsir kvikmyndaver og fyrirtæki í skapandi greinum. Landslagið er einstakt, vogskornir klettar, strendur með svörtum og gylltum sandi, fuglalíf og útsýni yfir Geldinganes, Viðey, Esju og miðborgina. Engar götur skilja byggðina frá náttúrunni og einungis hjóla- og göngustígar liggja að hafi.
 
Vatnastrætó, ylströnd, göngubrú út í Viðey og góðir göngu- og hjólastígar er meðal þess sem mun einkenna þetta skemmtilega hverfi. Það er einstakt að eiga kost á slíkri náttúruperlu í miðri höfuðborginni.
 
Það er stutt í alla þjónustu, hvort sem það er í verslun, skóla, leikskóla eða íþróttamannvirki.  Í Spönginni má m.a. finna ýmsar matvöruverslanir, vínbúð, veitingastaði, bókasafn, apótek, heilsugæslu, menningarmiðstöð og tónlistarskóla.  Stutt er í Vættaskóla sem er grunnskóli og Borgarholtsskóla sem er framhaldsskóli.  Þá eru fjölmargir leikskólar í nágrenninu auk þess sem golfvöllur er skammt undan. 

Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is 

Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone