Lýsing
Um er að ræða rúmgóða og vel skipulagða þriggja herbergja 100.2 fm endaíbúð búð á 2.hæð (einn tröppugangur upp) við í Flétturimi 8.
Gluggar eru á þrjá vegu í íbúð og útsýni af svölum, stæði í bílgeymslu fylgir með íbúð.
Aðeins eru sex íbúðir í stigaganginum.
Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands eru 141.9 fm:
Íbúð er 91.8 fm merkt 04-02-02 og geymsla 8.4 fm er merkt 04-00-04, samtals 100.2 fm að stærð.
Stæði í bílgeymslu fylgir íbúð merkt 05-01-10 og er það skráð hjá HMS sem 41.7 fm.
Nánari upplýsingar um eign:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða sveinn@landmark.is
Eignin skiptist í:
Forstofu/hol, herbergjagang, stofu/borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi innan íbúðar, sérgeymsla í kjallara og stæði í lokaðri bílgeymslu.
Sameiginleg hjóla/vagnageymsla í kjallara.
Nánari lýsing á eign:
Forstofa/hol er með innbyggðum fataskápum.
Herbergjagangur og innaf honum eru tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi.
Stofa/borðstofa er opið og bjart rými með gluggum á tvo vegu, útgengi á vestur-svalir úr stofu og er útsýni af þeim.
Eldhús er rúmgott með heillegri eldri innréttingu, efri og neðri skápar, gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu, borðkrókur.
Tvö rúmgóð svefnherbergi og eru fataskápar í öðru herberginu.
Baðherbergi er rúmgott með baðkari og sturtuklefa, innrétting í kringum vask.
Þvottaherbergi er innaf herbergjagangi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla er í kjallara, sameiginleg hjóla/vagnageymsla.
Bílastæði í lokaðri bílgeymslu er vel staðsett og er búið að leggja fyrir rafhleðslustöð að bílastæði.
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@landmark.is
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat