Upplýsingar
Byggt 2025
120,6 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Útsýni
Sameiginl. inngangur
Lyfta
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Eignamiðlun og Safír byggingar ehf kynna með stolti nýjar glæsilegar íbúðir í öðrum áfanga (D-húsi) á Orkureitnum við Suðurlandsbraut 38-44 og Grensásveg 2-6. Glæsilegt lyftuhús, sannkallaður sælureitur við Laugardalinn. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar með vönduðum Nobilia Innréttingum frá GKS, flísalögðum baðherbergjum en án megingólfefna.Orkureitur - Suðurlandsbraut 40-201, íbúð 02-01 er þriggja herbergja, 120.6 fermetra.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Ólafur H. Guðgeirsson, löggiltur fasteignasali í síma 663-2508, olafur@eignamidlun.is
Smellið hér til að skoða heimasíðuverkefnisins Orkureiturinn.is
**Sækja söluyfirlit**
Orkureitur - Suðurlandsbraut 40, íbúð 02-01 er 120.6 fermetra þriggja herbergja íbúð í nýju glæsilegu lyftuhúsi á einstaklega góðum stað rétt við Laugardalinn.
Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 120.6 fm með 10,3 fermetra sérgeymslu í kjallara hússins.
Innréttingaþema íbúðarinnar er Safír klassík (200). Þrjú innréttingaþemu frá Nobilia (Lser). Vönduð eldhústæki frá Siemens, háfur frá Elica og spanhelluborð frá Bora með innbyggðum gufugleypi þar sem er eldunareyja í eldhúsi.
Afhending íbúðanna: Gert er ráð fyrir að afhending fyrstu íbúða við Suðurlandsbraut 38-44 í nóvember/desember 2025 (D1/D2) og í janúar 2026 (D3) og við Grensásveg 2-6 í febrúar/mars 2026 (D4/D5).
Nánar um Orkureitinn:
Bjartar og vel hannaðar íbúðir
Á Orkureitnum verða byggðar 436 glæsilegar íbúðir þar sem lögð er alúð við að byggja upp framtíðarheimili þar sem vellíðan íbúa er höfð að leiðarljósi. Við hönnun íbúða er lögð megináhersla á vönduð byggingarefni, hagnýtt skipulag, góða birtu og útsýni. Hver íbúð hefur eigin búnað til loftskipta sem hámarkar loftgæði. Stórt bílastæðahús er tengt byggingum neðanjarðar en auk þess eru verslunar- og þjónusturými á jarðhæð með fjölbreyttri þjónustu við íbúa eins og veitingahús og kaffihús. Fyrsta áfanga (A-húsi) er lokið en áformað er að allri uppbyggingu á svæðinu verði lokið í lok árs 2027.
Framtíðarheimili á Orkureitnum
Orkureiturinn er skipulagður og hannaður með sjálfbærni og vistvæn sjónarmið að leiðarljósi. Sérstök áhersla er lögð á endurnýtingu orku og blágrænar ofanvatnslausnir. Á byggingartíma er lögð áhersla á endurvinnslu byggingarefnis, jarðvegs og gróðurs á svæðinu. Skipulag reitsins er það fyrsta í Reykjavík sem vottað er af BREEAM Communities vistvottunarkerfinu og hefur það fengið næsthæstu einkunn, sem er „Excellent“. Jafnframt er stefnt að því að allar íbúðir á reitnum verði Svansvottaðar.
Allt hverfið í kringum Orkureitinn er í mikilli uppbyggingu. Staðsetningin er í miðju verslunar- og þjónustukjarna í Skeifunni, Glæsibæ og Múlunum, svæði sem er miðsvæðis í þróunarás Reykjavíkurborgar við væntanlega Borgarlínu.
Nánari upplýsingar gefa löggiltir fasteignasalar Eignamiðlunar:
Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, sími 899-8815, kari@eignamidlun.is
Magnús Þórir Matthíasson löggiltur fasteignasali, sími 895-1427, magnus@eignamidlun.is
Rögnvaldur Örn Jónsson löggiltur fasteignasali, sími 660-3452, rognvaldur@eignamidlun.is
Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali, sími 839-1600, gunnarbergmann@eignamidlun.is
Ólafur H Guðgeirsson löggiltur fasteignasali, sími 663-2508, olafur@eignamidlun.is
Oddný María Kristinsdóttir löggiltur fasteignasali, sími 777-3711, oddny@eignamidlun.is
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson löggiltur fasteignasali, sími 864-5464, gudlaugur@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook