Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Vista
fjölbýlishús

Valshlíð 3

102 Reykjavík

89.900.000 kr.

1.167.532 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2532644

Fasteignamat

32.200.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
77 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Hjólastólaaðgengi
svg
Lyfta
svg
Svalir

Lýsing

Heima fasteignasala kynnir - Valshlíð 3 - Íbúð 306.
Íbúðin er staðsett í fyrsta áfanga Hlíðarhorns, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðir afhendast fullbúnar vorið 2025.

Glæsileg 3ja herbergja rúmgóð íbúð á 3. hæð á vesturhlið Hlíðarhorns. Birt stærð er 77,8 fm þar af 6 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á svalir, 2 svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens, vönduðum ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræstikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Mói 1.

Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.

Nánari lýsing: Í anddyri eru góðir fataskápar. Gengið er beint inn í rúmgott og bjart alrými með eldhúsi
og stofu/borðstofumeð gólfsíðum gluggum. Útgengt er á rúmgóðar vestursvalir. Taupe grá eldhúsinnrétting, svartur quartz-steinn á borðum og milli skápa og vönduð ítölsk blöndunartæki úr byssubláu stáli. Innbyggður ísskápur. Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum. Gott svefnherbergi með fataskáp. Baðherbergi með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Gráar steinflísar á gólfi og veggjum, Taupe grá innrétting og speglaskápur með lýsingu. Blöndunartæki á baði úr byssubláu stáli. Afmörkuð aðstaða á baði fyrir þvottavél og þurrkara. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0035. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Allar íbúðir eru fullloftræstar og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist í hverri íbúð. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og bambus, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingarar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.

Nánari upplýsingar veita:

Aron M. Smárason lfs. í síma 8887282, eða á aron@heimaf.is

Margrét Sæunn Axelsdóttir lfs. í síma 7703394, eða á margret@heimaf.is

Heimasíða verkefnis: www.hlidarhorn.is

Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins, ásamt upplýsingum er varða hönnun byggingarinnar.

ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu aðalverktaka og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir í auglýsingu geta verið úr annari íbúð með sama innréttingaþema.

Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

Gjöld sem kaupandi þarf einnig að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Glæsileg 3ja herbergja rúmgóð íbúð á 3. hæð á vesturhlið Hlíðarhorns. Birt stærð er 77,8 fm þar af 6 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á svalir, 2 svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens, vönduðum ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræstikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Mói 1.

Nánari lýsing: Í anddyri eru góðir fataskápar. Gengið er beint inn í rúmgott og bjart alrými með eldhúsi
og stofu/borðstofumeð gólfsíðum gluggum. Útgengt er á rúmgóðar vestursvalir. Taupe grá eldhúsinnrétting, svartur quartz-steinn á borðum og milli skápa og vönduð ítölsk blöndunartæki úr byssubláu stáli. Innbyggður ísskápur. Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum. Gott svefnherbergi með fataskáp. Baðherbergi með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Gráar steinflísar á gólfi og veggjum, Taupe grá innrétting og speglaskápur með lýsingu. Blöndunartæki á baði úr byssubláu stáli. Afmörkuð aðstaða á baði fyrir þvottavél og þurrkara. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0035. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.

Fyrirvarar:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Heima Fasteignasala

phone

Heima Fasteignasala

phone