Lýsing
Eignaland og Jens Magnús lgf. kynna í einkasölu Háengi 14, 800 Selfoss. Björt og vel skipulögð fimm herbergja íbúð á efstu hæð á enda. Íbúðin er skráð 124,7 fm þar af er geymsla 7,7 fm. Mikið er búið að endurnýja eignina að innan.
Nánari upplýsingar hjá Jens Magnúsi í síma 893-1984 eða magnus@eignaland.is
Nánari lýsing:
Forstofa með parketi á gólfi og góðu skápaplássi.
Svefnherbergi eru fjögur með parketi á gólfi.
Eldhús er með snyrtilegri, nýlegri innréttingu og tækjum.
Baðherbergi með baðkari og sturtuaðstöðu.
Salerni með klósetti og innréttingu.
Stofa og borðstofa eru sitthvorumegin við eldhúsið og þær eru hvorutveggja með útgengi á yfirbyggðar svalir.
Eignin hefur verið mikið endurnýjuð nýlega.
Gólfefni eru nýleg ásamt innihurðum.
Eldhús innréttinguna er einnig búið að endurnýja.
Heilt á litið björt og falleg eign miðsvæðis á Selfossi.
Allar nánari upplýsingar og bókanir í skoðun eru hjá fasteignasla:
Jens Magnús Jakobsson, sími 893-1984 eða magnus@eignaland.is
***Vegna mikillar sölu undanfarið get ég bætt við eignum á skrá***
***Kem og verðmet þína eign þér að kostnaðarlausu***
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.