Lýsing
Um er að ræða íbúð 405. Eignin skiptist í anddyri, eldhús, stofu og borðstofu í opnu rými, tvö góð svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Stæði í bílageymslu og sérgeymsla.
** Bókið skoðun hjá Sigríður Lind Eyglóardóttir löggiltur fasteignasali sigridur.lind@heimili.is / 8994703 **
Nánari lýsing:
Anddyri með fataskáp, flísar á gólfi.
Eldhús er með hvítri innréttingu frá Axis, spanhelluborði og bakaraofn frá AEG ásamt eyjuháf. Uppþvottavél. Góð vinnuaðstaða. Parket á gólfi.
Stofa og borðstofa er opið við eldhús, bjart og rúmgott rými með gólfsíðum gluggum. Útgengt á svalir úr stofu. Parket á gólfi.
Svefnherbergi 12 fm með fataskápum. Parket á gólfi.
Svefnherbergi 11,5 fm með fataskápum. Parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Snyrtileg hvít innrétting undir handlaug. Speglaskápur. Upphengt salerni. Labb-inn sturta. Handklæðaofn. Stæði fyrir þvottavél og þurrkara.
Bílastæði: Sérstæði í lokaðri bilageymslu fylgir eigninni.
Sameign: Sérgeymsla. Hjóla- og vagnageymsla.
Björt og vel skipulögð íbúð með fallegum innréttingum, gólfefnum og kuppaljósum í lofti í öllum rýmum. Sér inngangur frá svölum. Sérstæði í lokaðri bilageymslu.
Hamranes er 25 hektara nýbyggingarsvæði sunnan Skarðshlíðarhverfis og Vallarhverfis í Hafnarfirði. Framkvæmdir hófust 2021. Í hverfinu er gert ráð fyrir grunnskóla, tveimur fjögurra deilda leikskólum auk hjúkrunarheimilis. Uppbygging í hverfinu stendur yfir og hafa frumbyggjar í hverfinu þegar flutt inn. Staðsetning hverfisins er frábær með tilliti til útivistar, til dæmis Ástjörn, Helgafelli og Hvaleyarvatn. Stutt í íþróttasvæði Hauka á Ásvöllum.
Allar nánari upplýsingar um eignina gefur Sigríður Lind Eyglóardóttir löggiltur fasteignasali sigridur.lind@heimili.is / 8994703
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.