Eignin verður sýnd mánudaginn 12. maí 2025 milli kl. 17:15 og kl. 17:45.
Lýsing
Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs, brynjolfur@heimili.is
Nánari lýsing.
Sameign: snyrtileg og vel til höfð, á jarðhæð eru flísar en annars teppi á gólfum.
Anddyri: ágætur fataskápur og flísar á gólfi.
Stofa: falleg og björt með gólfsíðum gluggum á tvo vegu og fallegu útsýni yfir höfuðborgina. Á gólfi er parket og frá stofu er útgengt á svalir eignar.
Eldhús: falleg ljós viðarinnrétting, mikið skápapláss, góð vinnuaðstaða, gluggar á tvo vegu og rúmgóður borðkrókur. Á gólfi eru flísar.
Hjónaherbergi: rúmgott, parket á gólfi og tvöfaldur fataskápur innan herbergis.
Svefnherbergi: rúmgott, parket á gólfi og fataskápur innan herbergis.
Baðherbergi: hvít innrétting með ágætum neðri skápum og tengi fyrir þvottavél, við enda baðherbergis er baðkar með sturtuaðstöðu og gluggi með opnanlegu fagi. Á gólfi og á veggjum eru flísar.
Hol og geymsla: fyrir utan svefnherbergi er rúmgott hol sem í dag er nýtt undir skrifstofu og inn af holi er ágæt geymsla.
Bílskúr: er í bílskúrslengu, rúmgóður með góðu geymslulofti og rafknúnum bílskúrshurðaopnara. Fyrir framan bílskúr er sérbílastæði íbúðar auk sameiginlegra bílastæða á lóðinni.
Falleg og vel skipulögð íbúð í grónu hverfi þar sem stutt er í Spöngina, leik-, grunn- og menntaskóla sem og fallega náttúru.
Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@heimili.is
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.