












Lýsing
Miklaborg kynnir: Fallegt raðhús á tveimur hæðum í vinsælu og fjölskylduvænu hverfi í Norðlingaholti
Glæsilegt og vel skipulagt 5 herbergja raðhús byggt árið 2016. Húsið stendur á rólegum og barnvænum stað í Norðlingaholti og býður upp á björt og rúmgóð rými.
Á neðri hæðinni er bílskúr, forstofa, gestasalerni, geymsla, eldhús og rúmgóð stofa með útgengi á suðurverönd sem snýr að skjólgóðum garði. Á efri hæðinni eru fjögur svefnherbergi, þar af tvö með útgengi á suðursvalir, baðherbergi og þvottahús. Risloft er yfir stórum hluta efri hæðar og býður upp á möguleika á auknu geymsluplássi.
Allar nánari upplýsingar veitir Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is
Nánari lýsing neðri hæðar:
Forstofa er með viðarfataskápum sem ná upp í loft. Ljósar flísar á gólfi.
Geymsla er á hægri hönd þegar komi er inn af forstofu. Rýmið er með glugga og opnanlegu fagi og er nýtt í dag sem skrifstofurými. Herbergið teygir sig undir tröppur upp á efri hæð eignarinnar.
Gestasalerni Flísalagt í hólf og gólf með hvítum flísum. Upphengt salerni, skápur undir handlaug og spegill þar fyrir ofan.
Stofa og borðstofa eru saman í opnu rými sem tengjast eldhúsi.
Eldhús er með viðarinnréttingu á einum vegg og eyju þar á móti. Hvítur steinn á borðum og flísar milli efri og neðri skápa. Ofn og örbylgjofn í vinnuhæð. Eyja er með helluborði og háfi með ljósi þar yfir. Gólfhiti er í eldhúsi. Útgengi er út á afgirta timburverönd frá eldhúsi.
Bílskúr er 26,7 m2 með rafdrifinni bílskúrshurð.
Nánari lýsing efri hæðar:
Svefnherbergin eru fjögur. Tvö snúa til norðurs. Hin tvö snúa til suðurs og eru með útgengi út á sv-svalir. Fínir fataskápar eru í öllum herbergjum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með hvítum flísum. Viðar innrétting, stór spegill og ljós. Sturta er einstaklega rúmgóð og handklæðaofn er framan við sturtu. Gólfhiti.
Þvottahús er með viðarinnréttingu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Vaskur ofan í borðplötu. Flísar á gólfum
Risloft er aðgengilegt frá svefnherbergisgangi. Það er manngengt, einangrað og mjög rúmgott.
Norðlingaholtið er eftirsótt hverfi með fallegri náttúru í kring og fjölbreyttum útivistarmöguleikum. Í hverfinu eru tveir leikskólar og grunnskóli, góðir göngu- og hjólastígar og stutt í náttúruperluna Heiðmörk. Íþróttafélagið Fylkir er einnig með aðstöðu í göngufæri.