Opið hús að Framnesvegi 21 milli kl 13:00 og 13:30 sunnudaginn 15. maí.
Lýsing
Eignin skiptist í stofu, eldhús, tvö svefnherbergi og baðherbergi en henni fylgir geymsla og hlutdeild í sameign, sameiginlegu þvottahúsi á jarðhæð.
Birt stærð eignar er 53.3 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands en nýtanlegur gólfflötur er töluvert meiri
SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT en annars veiti ég allar frekari upplýsingar í síma 663 2300 eða thorey@landmark.is
Nánari lýsing:
Forstofa með fatahengi, parket á gólfi.
Eldhús, sérsmíðuð viðarinnrétting með innbyggðri uppþvottavél og eldavél með keramik helluborði, parket á gólfi.
Stofa og borðstofa, parket á gólfi.
Hjónaherbergi, var áður partur af alrými en búið að loka með rennihurðum, parket á gólfi og útgengt á suðursvalir.
Barnaherbergi undir súð en nýtist mjög vel, parket á gólfi.
Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf með innréttingu, salerni og baðkari með sturtustöng.
Á sameignargangi í kjallara er sérgeymsla íbúðar og sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla. Fallegur bakgarður með sameigilegri verönd
Húsgjöld eignar eru 8.816 kr. á mánuði og þá er innifalinn allur almennur rekstur húsfélags, þrif sameignar og húseigendatrygging.
Engar fyrirhugaðar samþykkar framkvæmdir en þá var skolplögn endurnýjuð að brunni á þessu ári, skipt um þakjárn 2023, húsið viðgert og málað að utan 2022. og stigagangur málaður 2022.
Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða gegnum thorey@landmark.is.
Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat