Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Aðalheiður Karlsdóttir
Vista
fjölbýlishús

SPÁNAREIGNIR - Punta Prima

953 Spánn - Costa Blanca

47.700.000 kr.

671.831 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F1001205

Fasteignamat

0 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
71 m²
svg
3 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

 SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEGAR ÍBÚÐIR VIÐ STRÖND STRÖND - GÖNGUFÆRI Í VERSLANIR OG VEITINGASTAÐI*

Vandaðar og fallegar 3ja herb. íbúð, 2 svefnh. + 2 baðh. í lyftublokk á frábærum stað við Punta Prima ströndina, stutt frá La Zenia Boulevard og Torrevieja, ca. 40 mín akstur í suður frá Alicante flugvelli. Aðeins nokkur skref á ströndina. Fallegur, gróinn sundlaugargarður. Frábærir veitingastaðir í örstuttu göngufæri. Gróið og fallegt umhverfi. 
Einstakt tækifæri til að eignast nýja og flotta íbúð við sjóinn.
AÐEINS ÖRFÁAR ÍBÚÐIR EFTIR.

Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. adalheidur@spanareignir.is. GSM 00354 893 2495.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is GSM 0034 615 112 869,
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur.  karl@spanareignir.is. GSM 00354 777 4277.

Nánari lýsing:

Um er að ræða glæsilegar 3ja herb. íbúðir í vönduðu og fallegu fjölbýlishúsi rétt við Punta Prima ströndina.  Grænt og fallegt umhverfi í vel hönnuðum sundlaugargarði. Sundlaug, heitur pottur, leiksvæði fyrir börnin, góð aðstaða fyrir slökun og hvíld, líkamsrækt og endurnæringu líkama og sálar. Örstutt göngufæri á ströndina, þar sem hægt er að busla í sjónum eða setjast niður á skemmtilega veitingastaði. Nautilus og Punta Prima restaurant veitingastaðirnir eru í ca. 2-5 mín göngufæri og ca. 10 mín göngufæri á Asia Kitchen og fleiri góða veitingastaði við Punta Prima hringtorgið.

Íbúðin er rúmgóð með tveimur svefnherbergjum þe. rúmgóðu hjónaherbergi með sér baðherbergi og öðru svefnherbergi og baðherbergi. Góð stofa/alrými og fallegt eldhús. Góðar svalir.
Falleg hönnun og vandaðar innréttingar.

Stæði í bílakjallara fylgir ásamt sér geymslu.
Hægt er að fá íbúðina afhenta fullbúna húsgögnum gegn aukagjaldi.

Aðeins nokkur skref eru á fallega strönd sem liggur að Miðjarðarhafinu og þaðan eru göngu og hjólreiðastígar til Torrevieja og Playa Flamenca, La Zenia ströndina og Cabo Roig ströndina. 
Fjölbreytt úrval verslana og veitingastaða í örstuttu göngufæri á Punta Prima svæðinu. La Zenia Boulevard,  glæsileg miðstöð verslana, veitingastaða er í ca. 5 mín. akstursfjarlægð. Alicante flugvöllur er í ca. 40 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 10 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira.
Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. 

Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast nýja og vandaða íbúð á frábærum stað, stutt frá  öllu því sem gerir dvölina á Spáni  skemmtilega.

Verð, gengi 1Evra=145ISK
Íbúð með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum: 329.000 Evrur. (47.700.000ISK) + kostn. við kaupin.

Á sama stað eru líka til íbúðir með 3 svefnh. + 2 baðh. Verð frá 364.000 Evrum (52.700.000ISK) + kostn. við kaupin.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra ef af viðskiptum verður.

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.

Kostnaður við kaupin: 10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: strönd, útsýni, sameiginlegur sundlaugargarður, bílakjallari, ný eign, 
Svæði: Costa Blanca, Punta Prima,

 

img
Aðalheiður Karlsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Spánareignir
Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.
img

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.