Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1978
276 m²
5 herb.
4 baðherb.
6 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Útsýni
Sérinngangur
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Mikið endurnýjað og vel skipulagt 276 fermetra einbýlishús á rólegum og fallegum stað við Vaðlasel 10 í Reykjavík. Húsið er á tveimur hæðum og með tveim auka íbúðum. Önnur íbúðin er í 45,5 fm bílskúr og hin um 70 fm í viðbyggingu við húsið. Húsið stendur á 710,0 fermetra mjög fallegri lóð í botnlanga. Eignin hefur verið endurnýjuð að miklum hluta síðustu ár, nýlegt rúmgott eldhús með góðum skápum frá Axis, nýr Miele ofn og gott vinnupláss. Búið að skipta út nánast öllu rafmagni og setja nýjar töflur. Þak yfirfarið og málað. Mjög skjólsæll 150 fm pallur bak við hús og góðar þaksvalir á efri hæð. Mögulegt að sækja um leyfi til að stækka húsið um 50 fm.Nánari upplýsingar veitir Gunnar Bergmann Jónsson í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.is
Forstofa: Gengið inn á neðri hæðina. Fataskápar í forstofu. Þaðan gengið inn í alrými hússins. Rúmgóð stofa og borðstofa. Nýlega búið að flota gólf á neðri hæð og setja gólfhita. Eitt svefnherbergi á neðri hæð rúmgott með harðparketi og nýjum ofni. Nýuppgert baðherbergi á neðri hæð, upphengt salerni og innrétting. Rúmgott eldhús með nýlegri innréttingu frá Axis, steinn á borðum, innbyggð AEG uppþvottavél. Borðkrókur og gengið þaðan út á mjög stóra pall.
Gengið er upp á efri hæð hússins upp teppalagðan stiga. Tvö barnaherbergi eru á efri hæðinni bæði með nýjum ofnum og nýju harðparketi.
Hjónaherbergi: parketlagt og rúmgott með fataskápum. Nýjar innihurðar á öllum rýmum. Baðherbergi á efri hæð með stórri sturtu. Nýtt upphengt salerni. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara inn á baðherbergi. Góð innrétting.
Bílskúr: er 45,5 fermetrar að stærð og búið að útbúa að hluta sem íbúð með svefnlofti, salerni. fínu alrými og eldhúsaðstöðu. Íbúðin hefur verið leigð út í skammtímaleigu síðustu ár. Rafmagn, hiti, heitt og kalt vatn eru í bílskúr. Búið er að stúka af geymslu innan bílskúrs. Tenging fyrir 3ja fasa rafmagn til staðar í bílskúr. Búið að setja gólfhita í þennan hluta eignarinnar og skipta út öllum gluggum.
Húsið að utan: Þak yfirfarið reglulega og virðist vera í góðu ástandi. Ytra byrgði húss lítur vel út. Garðurinn og pallurin líta vel út og frágangur til fyrirmyndar. Rúmgott bílaplan fyrir framan hús. Rafmagnstenglar til staðar fyrir framan hús og 22kw hleðslustöð, lagnaleið fyrir auka hleðslustöð.
Í viðbyggingu við húsið er búið að útbúa ca. 70 fm íbúð með einu svefnherbergi, baðherbergi, rúmgóðri stofu sem er opin inn í eldhús. Útgengi út á pall út frá stofu. Mikil lofthæð er í rýminu sem gerir það einstaklega skemmtileg og bjart. Íbúðin hefur verið í langtímaleigu síðustu ár.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
27. jún. 2018
73.200.000 kr.
75.000.000 kr.
276 m²
271.739 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025