Opið hús: Freyjubrunnur 25, 113 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 02 03. Eignin verður sýnd mánudaginn 19. maí 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Forstofa er flísalögð með fataskáp.
Stofan er með harðparketi á gólfi og er samliggjandi með eldhúsi í opnu og björtu rými. Útgengt út á suðursvalir.
Eldhúsið er með fallegri innréttingu (bæsuð eik), steini í borðum með vönduðum tækjum. Parket á gólfi.
Svefnherbergið er rúmgott með parketi á gólfum og góðum fataskápum.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með fallegri innréttingu, steyptri sturtu, baðkari og fallegri innréttingu.
Þvottahúsið er með flísalagt gólf og innréttingu með vaski.
Sérgeymsla er á jarðhæð í sameign, ásamt sameiginlegum rýmum.
Upplýsingar veita:
Erla Friðriksdóttir aðstoðarmaður fasteignasala í síma 896-6160 eða erla@landmark.is
Sigurður Samúelsson Lgf í sima 896-2312 eða ss@landmark.is
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat