Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þorbjörnsson
Kristinn Sigurbjörnsson
Haukur Andreasson
Elín Frímannsdóttir
Helgi Bjartur Þorvarðarson
Vista
svg

21

svg

20  Skoðendur

svg

Skráð  15. maí. 2025

fjölbýlishús

Súlutjörn 15 nh

260 Reykjanesbær

74.900.000 kr.

606.969 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2283659

Fasteignamat

61.400.000 kr.

Brunabótamat

66.450.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2006
svg
123,4 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina Súlutjörn 15, Íbúðin er á neðri hæð ásamt rúmgóðum sólpalli. Birt stærð íbúðar er 123,4 fm,

Björt og vel skipulögð íbúð á jarðhæð. Sér inngangur. Fjögur svefnherbergi, nýleg eldhúsinnrétting og tæki, nýlegar innréttingar og tæki inni á baði. Nýleg gólfefni. 

Nánari upplýsingar veitir/veita:
Páll Þorbjörnsson löggiltur fasteignasali, í síma 560-5501, tölvupóstur pall@allt.is
Helgi Bjartur Þorvarðarsson lögfræðingur / löggiltur fasteignasali, í síma 770-2023, tölvupóstur helgi@allt.is.

*** Stutt í leik og grunnskóla
*** Fjögur svefnherbergi
*** Nýleg eldhúsinnrétting og tæki (2021)
*** Nýleg gólfefni (2021)
*** Baðherbergi endurnýjað að hluta (2021)
*** Útgengni út á sólpall frá stofu/eldhúsi
*** Þvottahús innrétting endurnýjuð haustð 2024

Gengið er inn í flísalagða forstofu með fataskáp, beint inn af henni er þvottahúsið og geymsla. Komið inn í bjart og opið rými, búið að opna inn á milli eldhús og stofu.
útgengni út á rúmgóðan sólpall. Herbergjagangur er með fjórum svefnherbergjum, skápar í herbergjum. Baðherbergi hefur verið endurnýjað að hluta, innréttingar, sturtuþil, sturta og handklæðaofn. Lok árs 2024 voru settar nýjar sérsíðaðar gardínur frá Álnabæ í eldhúsi, stofu og svefnherbergjum.

Forstofa: Flísar  á gólfi og góður fataskápur.
Þvottahús/geymsla: staðsett inn af forstofu. Ný Innrétting endurnýjuð haustið 2024. Tengingar fyrir vask. Búið að opna milli þvottahús og geymslu.
Svefnherbergin: Fjögur rúmgóð svefnherbergi með parketi á gólfum, skápar í herbergjum.
Baðherbergi: Flísalagt, baðkar með sturtu, falleg innrétting, handklæðaofn og gluggi. Innréttingar og tæki ásamt sturtuþili endurnýjað 2021.
Eldhús: Eldhús var endurnýjað árið 2021, hvít innrétting frá IKEA ásamt eyju.
Stofa/borðstofa: Parket á gólfum, rúmgóð stofa og útgengt út á verönd. Mikið af gluggum.
Sólpallur er rúmgóður, stór sameiginleg lóð.
Sameign eru tvær geymslur sameiginlegar með efrihæð. Önnur undirstiga palli og hin á gafli íbúðar.

STUTT ER Í ALLA ÞJÓNUSTU SVO SEM T.D. SKÓLA, LEIKSKÓLA OG ÍÞRÓTTASVÆÐI.
 
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

img
Páll Þorbjörnsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
ALLT fasteignasala – Reykjanesbær - Mosfellsbær – Grindavík
ALLT fasteignasala – Reykjanesbær - Mosfellsbær – Grindavík

ALLT fasteignasala – Reykjanesbær - Mosfellsbær – Grindavík

phone
img

Páll Þorbjörnsson

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
26. júl. 2022
41.150.000 kr.
60.000.000 kr.
123.4 m²
486.224 kr.
23. ágú. 2018
30.900.000 kr.
36.200.000 kr.
123.4 m²
293.355 kr.
10. nóv. 2016
22.750.000 kr.
29.100.000 kr.
123.4 m²
235.818 kr.
8. nóv. 2015
20.800.000 kr.
26.900.000 kr.
123.4 m²
217.990 kr.
24. okt. 2006
17.655.000 kr.
21.500.000 kr.
123.4 m²
174.230 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
ALLT fasteignasala – Reykjanesbær - Mosfellsbær – Grindavík

ALLT fasteignasala – Reykjanesbær - Mosfellsbær – Grindavík

phone

Páll Þorbjörnsson