Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Vista
svg

166

svg

150  Skoðendur

svg

Skráð  15. maí. 2025

einbýlishús

Blómvellir 9

221 Hafnarfjörður

139.900.000 kr.

669.378 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2264694

Fasteignamat

124.900.000 kr.

Brunabótamat

113.700.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2003
svg
209 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 20. maí 2025 kl. 17:30 til 18:00

Opið hús: Blómvellir 9, 221 Hafnarfjörður. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 20. maí 2025 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.

Lýsing

Einstaklega vel skipulagt og fallegt einbýlishús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr á þessum vinsæla stað á Völlunum í Hafnarfirði. Skjólgóður sólpallur með heitum potti. Stórt bílaplan er fyrir framan húsið. 

Húsið er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 209 fm. og þar af er innbyggður bílskúr 31,9 fm. 

Nánar um eignina: 

Neðri hæð
Forstofa með góðu skápaplássi og flísum á gólfi. 
Þvottahús er inn af forstofunni mjög rúmgott með glugga og flísum á gólfi. Innan úr þvottahúsi er innangengt í bílskúrinn. 
Bílskúr einstaklega rúmgóður og bjartur sem býður upp á margvíslega nýtingamöguleika. Flísalagður með gólfhita og opnanleg fög í gluggum. 
Eldhús rúmgott með góðu skápaplássi, eyja með eldunaraðstöðu, gufugleypir, rúmgóður borðkrókur, tengi fyrir uppþvottvél og flísar á gólfi. 
Stofa rúmgóð og björt með gólfsíðum gluggum (speglagluggar) og flísum á gólfi. 
Baðherbergi með sturtu, snyrtileg innrétting og flísalagt í hólf og gólf. Gott aðgengi er frá baðherberginu út á sólpall með heitum potti.
Stigi sem er flísalagður liggur upp á efri hæð hússins og setur skemmtilegan svip á neðri hæðina. 

Efri hæð
Sjónvarpshol sem er mjög rúmgott með parketi á gólfi. Skv. teikningum var hluti rýmisins teiknað sem herbergi og er hægt að gera fjórða herbergið í húsinu. 
Gangur með parketi og þaðan er útgengt út á stórar svalir sem einnig er útgengt út á úr hjónaherbergi. 
Hjónaherbergi rúmgott með góðu skápaplássi og parketi á gólfi. Útgengt er út á stórar svalir úr herberginu. 
Svefnherbergi II með skáp og parketi á gólfi. 
Svefnherbergi III með skáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi rúmgott með baðkari með sturtu aðstöðu, snyrtileg innrétting, gluggi og flísalagt í hólf og gólf. 

Bílaplan fyrir framan húsið er hellulagt og gert er ráð fyrir fjórum bílastæðum. 
Sólpallur með heitum potti og gras er fyrir framan pallinn. 

Húsið er afar vel staðsett framarlega á völlunum þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, leikskóla, skóla, sundlaug, íþróttamiðstöð og matvöruverslanir.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfaningu gudbjorg@trausti.is

 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
4. jún. 2020
126.800.000 kr.
78.000.000 kr.
10101 m²
7.722 kr.
28. apr. 2015
45.000.000 kr.
42.500.000 kr.
209 m²
203.349 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir

Vegmúla 4, 108 Reykjavík