Eignin verður sýnd mánudaginn 19. maí 2025 milli kl. 17:15 og kl. 17:45.
Lýsing
Nánari lýsing:
Íbúð 0306 er 123,1 fm fjögurra herbergja íbúð á 3.hæð og skiptist í anddyri, þrjú rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, eldhús og stofu með útgengi á svalir og útsýni yfir hraunið.
Anddyri: Rúmgóður fataskápur (eik) og parket á gólfi.
Borð- og setustofa: Í opnu björtu rými með eldhúsi. Á gólfi er parket og frá stofu er útgengt á sér svalir íbúðar sem snúa til suðurs þar sem njóta má fallegs útsýnis yfir hraunið og til fjalla.
Eldhús: Sérsmíðuð innrétting frá Axis, góð vinnuaðstaða, ofn, helluborð og gufugleypir frá Ormsson og blöndunartæki frá Tengi.
Svefnherbergi: Rúmgott með fataskápum (Eik) og parketi á gólfi.
Svefnherbergi: Rúmgott með fataskápum (Eik) og parketi á gólfi.
Svefnherbergi: Rúmgott með fataskápum (Eik) og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Innréttingar frá Axis, blöndunartæki frá Tengi, vegghengt WC, flísalagður sturtuklefi afmarkaður með glerþili og gluggi með opnanlegu fagi . Á gólfi og á veggjum við sturtu eru flísar frá Birgisson.
Sameign: Sérgeymsla íbúðar er á fyrstu hæð sem og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Húsið stendur á lóð sem markast af ósnortnu landi til suðurs og vesturs þar sem fyrir framan hús er fjöldi bílastæða og búið að gera ráð fyrir hleðslustöðvum og á bak við hús er sameiginlegur garður með leiktækjum og sígrænum gróðri.
Falleg, rúmgóð og vel skipulögð íbúð í nýju klæddu lyftuhúsi þar sem stutt er leik- og grunnskóla, World Class, sundlaug og fallega náttúru.
Fyrir frekari upplýsingar og skoðanir hafið samband við:
Brynjólfur Snorrason lgf., brynjolfur@heimili.is, 896-2953
Gunnlaugur A. Björnsson lgf., gab@heimili.is, 617-5161
Anna Sigurðardóttir lgf., as@heimili.is, 898-2017
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.