Lýsing
Þrjú hús eru í lengjunni og er um miðjuhús að ræða. Húsið er glæsilega hannað, klætt með fallegri bronsaðri álbáru og gegnheilum bambus. Einhalla þak og allt að 3,7m lofthæð í stofu. Bambus borðin eru eldþolin, mygla ekki og eru með bæði LEED og BREEAM vottun.*
Húsið er vel staðsett, með snyrtilegum frágengnum garði sem snýr til suðurs. Útgengt er á veröndina frá hjónaherbergi og frá stofu um stóra rennihurð. Veröndin er stúkuð af milli húsa, skjólgóð, yfirbyggð með skyggni og flísalögð með svörtum 60x60 Brave Coke flísahellum.**
Lóðin er að öðru leiti þökulögð. Innfelld lýsing og tenglar (fyrir jólaseríurnar) eru í þakkanti beggja megin húss. Ídráttarrör og frárennsli er klárt fyrir heitan pott í garðinum, garðkrani er tengdur. Framan við húsið er steypt bílaplan með hitalögn sem er tilbúin til tengingar.
Allar nánari upplýsingar veitir Halldór í síma 6932916 - halldor@fastgardur.is
3D myndir af sambærilegri eign.
Lýsing eignar fullbúin:
Anddyri: Komið er inn í rúmgott anddyri með fataskáp.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með fallegri innréttingu, upphengdu salerni, handklæðaofni og stórri sturtu, aðskilinni með gleri.
Svefnherbergi I: Inn af anddyri er rúmgott svefnherbergi með fataskáp. Parket á gólfi.
Hol / gangur: Frá anddyri er komið inn í stórt hol í miðrými hússins, þaðan sem gengið er inn í aðrar vistarverur. Parket á gólfum.
Eldhús: Opið inn í stofu, vönduð innrétting með góðu skápaplássi, uppþvottavél, helluborð og ofn fylgir. Góð lofthæð er í eldhúsi og sameinast það stofu á skemmtilegan hátt. Parket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Björt og rúmgóð með stórum gluggum ásamt stórri rennihurð þar sem er útgengt á verönd til suðvesturs. Parket á gólfi. Lofthæðin í stofunni er flott (einhalla að 3,7 m) og gefur henni virkilega flott yfirbragð.
Hjónaherbergi: Er sérlega glæsilegt með stórum fataskápum, útgengi á suðvesturverönd og sér baðherbergi með sturtu. Parket á gólfi.
Baðherbergi II: Er inn af hjónaherbergi, flísalagt, með handlaug, fallegri innréttingu, handklæðaofni og sturtu.
Svefnherbergi II: Rúmgott 9,8 fm með fataskáp og mikilli lofthæð. Parket á gólfi.
Þvottahús: Rúmgott með góðri lofthæð. Vaskaskápur með tengi fyrir þvottavél og þurrkara hlið við hlið undir borðplötu. Gott pláss er til að setja upp hillur og innangengt er í bílskúrinn.
Bílskúr: Góð bílskúrshurð með rafmagnsopnara og innangengt í þvottahús. Í bílskúr er gert ráð fyrir tengi fyrir rafmagnsbíl og er hægt að setja hleðslustöðina upp hvort sem er inní skúr eða utan á klæðninguna fyrir framan bílskúrinn.
Bílaplan: Stórt steypt bílaplan með þremur stæðum, ílögð en ótengd snjóbræðsla.
Lóðin: Er fullfrágengin, steypt bílaplan með hitalögn fyrir framan hús, tyrfð lóð og flísalögð verönd út frá stofu og hjónaherbergi. Búið er að leggja ídráttarrör fyrir heitan pott frá bílskúr út í garð og ganga frá affalli. Garðkrani utan á húsi lóðarmegin.
Helstu vegalengdir:
Þurárhraun - leikskóli/grunnskóli/sundlaug 10 mín gangandi
Þurárhraun - heilsugæsla/verslun/ráðhús/ÁTVR/bakarí ofl 8 mín gangandi
Þurárhraun - Gryfjan bike park 8 mín hjólandi
Þorlákshöfn - Hveragerði 14 mín akandi
Þorlákshöfn - Selfoss 20 mín akandi
Þorlákshöfn - Rauðavatn 30 mín akandi
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður