Lýsing
Miklaborg fasteignasala og Safír byggingar ehf. kynna nýjar glæsilegar eignir við Suðurlandsbraut og Grensásveg. Orkureiturinn er nýtt og glæsilegt íbúðahverfi við Laugardalinn. Sannkallaður sælureitur. Sérstök áhersla lögð á endurnýtingu orku og dagsbirtuvottaðar íbúðir. Rut Kára stýrir innanhúshönnun íbúða og leggur línurnar fyrir sameiginleg rými. Inngarðar að evrópskri fyrirmynd og líkamsræktarsalur í sameiginlegu rými á jarðhæð D hlutans. Einnig verður fjölbreytt þjónusta á jarðhæð eins og kaffihús og önnur hentug nærþjónusta sem auka á lífsgæði íbúa. Kynntu þér Orkureitinn og bókaðu skoðun hjá Böddi lgf S:8216300 - boddi@gmail.com
Nánari lýsing:
Íbúð 801 er 152,5 fm þriggja herbergja þakíbúð á áttundu og efstu hæð. Bílskúr í bílakjallara 20 fm. Geymsla 13 fm og svalir sem snúa í átt að Grensás ásamt þaksvölum í átt að Inngarði. Innrétting VAL (Safír Premíum). Eignin skiptist í forstofu með góðu skápaplássi. Hjónasvítu með sér baðherbergi. Sjónvarpsherbergi, baðherbergi, þvottahús og eldhús í alrými. Stofu og borðstofu. Íbúðin er afhent með öllum Siemens raftækjum í eldhúsi og vönduðum innréttingum frá GKS. Íbúðir eru afhentar án megin gólfefna. Baðherbergi eru flísalögð.
Nýjar lausnir - betri hljóðvist
Hver íbúð er útbúin loftræstikerfi með varmaendurvinnslu. Allt loft sem fer í gegnum kerfið er síað og er því minna af svifryki og frjókornum í íbúðunum en ella. Á byggingartíma er lögð áhersla á endurvinnslu byggingarefnis, jarðvegs og gróðurs á svæðinu. Skipulag reitsins er það fyrsta í Reykjavík sem vottað er af BREEAM vistvottunarkerfinu og hefur það fengið einkunina Excellent. Allar íbúðir við Orkureitinn eru hannaðar til að hámarka nýtingu dagsbirtu og þar með auka vellíðan og stuðla að lífsgæðum íbúa.
Nánari upplýsingar veita:
Böddi lgf. S.8216300 - boddi@miklaborg.is
Friðjón Örn lgf. S 692 2704 - fridjon@miklaborg.is
Ingimundur lgf. S 867 4540 - ingimundur@miklaborg.is
Íris Arna lgf. S 770 0500 - iris@miklaborg.is
Kjartan ísak lgf. S 663 4392 - kjartan@miklaborg.is
Móa lgf. S 899 8278 - moa@miklaborg.is