Lýsing
Íbúðin er á þriðju og efstu hæð með stórum suðursvölum með fallegu útsýni til suðurs og vesturs.
Smelltu hérna til að horfa á vídeó af eigninni.
Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands 83,2 fm.
Eignin skiptist í : Forstofu, þrjú svefnherbergi, vinnustofa og baðherbergi, ásamt alrými með eldhúsi, borðstofu,
stofu og útgengi á rúmgóðar suður svalir ásamt sér geymslu í sameign.
Nánari lýsing eignar:
Anddyri með góðum skáp og dúk á gólfi.
Eldhús er parketlagt og opið við stofu sem mynda alrými eignarinnar. Falleg hvít sprautulökkuð innrétting með góðri eyju, uppþvottavél, innbyggður ísskápur, spanhelluborð og bakarofn er í vinnuhæð.
Stofa, borðstofa og eldhús er i sameiginlegu alrými sem er rúmgott og bjart með fallegum gluggum. Parket á gólfi
Úr stofu er útgengi á rúmgóðar svalir sem snúa í suður.
Hjónaherbergi er rúmgott með skápum og parket á gólfi.
Svefnherbergi I er með parket á gólfi..
Svefnherbergi II er með parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtuaðstöðu. Innrétting með hvítum vask, spegla skápar með góðu skápaplássi.
Vinnustofa sem hægt er að bæta við 4ja svefnherberginu.
Að sögn eigenda hafa verið gerðar eftirtaldar framkvæmdir/ endurnýjun.
Hús
2014 : Nýtt þak
2015 : Múrviðgerðir á húsinu
2017 : Húsið málað
2024 : Stigagangur málaður
Íbúð
2018 : Baðherbergi endurnýjað
2019 : Eldhúsið endurnýjað
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð, miðsvæðis í borginni á grónum stað þaðan sem stutt er í leikskóla, skóla, fallegar gönguleiðir í Fossvogsdalnum, verslanir og þjónustu.
Nánari upplýsingar um eignina veitir:
Inga Reynis löggiltur fasteignasali í síma 820-1903 eða á inga@gimli.is.
Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.
Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.
Gimli gerir betur...