Lýsing
Íbúðin er skráð samtals 106,90 fermetrar skv. Þjóðskrá Íslands.
Íbúðin skiptist í anddyri, þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi meðtengi fyrir þvottavél, og geymslu innan íbúðar.
Þá er einnig sérmerkt bílastæði í bílakjallara og aðgangur að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Nánari lýsing:
Anddyri: Harðparket á gólfi og rúmgóður fataskápur.
Eldhús: Falleg HTH innrétting í L-lagi með flísum á milli skápa og lýsingu undir efri skápum. Eldhústæki frá AEG; spanhelluborð, bakaraofn í vinnuhæð, háfur og tengi fyrir uppþvottavél. Eldhús opnast inn í stofu og borðstofu.
Stofa/borðstofa: Rúmgott og bjart alrými með harðparketi á gólfi og útgengi á suðursvalir.
Hjónaherbergi: Rúmgott með harðparketi á gólfi og fataskápum. Myrkvunargardínur fylgja.
Svefnherbergi I og II: Bæði rúmgóð með harðparketi á gólfi og fataskápum. Myrkvunargardínur fylgja.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með sturtu, glerþili og upphengdu salerni. Innrétting og efri skápur við vask. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Útloftun er úr rýminu.
Geymsla: Er innan íbúðar, við anddyri. Harðparket á gólfi.
Annað:
Bílastæði í bílageymslu fylgir eigninni.
Gluggatjöld fylgja, skreen í stofu og myrkvunargardínur í svefnherbergjum.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á fyrstu hæð.
Möguleiki á hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl.
Húsið er byggt árið 2016 og steinað að utan með fallega frágenginni lóð.
Sameign er snyrtileg, flísalögð í forstofu og teppi á stigagangi.
Um er að ræða vel skipulagða eign í fjölskylduvænu og vinsælu hverfi í Úlfarsárdal þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, íþróttasvæði Fram og alla helstu þjónustu.
Þá er náttúran í næsta nágrenni með frábærum göngu- og hjólaleiðum um Úlfarsfell og nágrenni.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / sími 450-0000
Langar þig að láta skoða möguleika á sölu á þinni eign ?
Netverðmat: Smelltu hér til að sjá hvers virði eignin þín er.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður