Lýsing
Húsið er staðsett miðsvæðið í blandaðri byggð á Selfossi, stutt í miðbæinn á Selfossi sem og alla almenna þjónustu og útivistarsvæði. Smellið hér fyrir staðsetningu.
Íbúðin er innréttuð fyrir ferðaþjónustu, smellið hér til að sjá skráningu. Eignin er talsvert bókuð í ferðaþjónustu næstu 6 mánuði.
Húsið er steypt, byggt árið 1972, íbúð 112.4 m² samkvæmt HMS.
Skipulag íbúðar: anddyri/stigi, eldhús, stofa og borðstofa, tvö til þrjú svefnherbergi, baðherbergi, gangur og þvottahús/geymsla. Í sameign: Stigahús og inntaksrými.
Nánari lýsing:
Í sameign er stigahús, gengið inn á bakhlið hússins, sameiginlegur stigagangur liggur uppá aðra hæð, þar er inngangur íbúðar, gengið upp eina hæð.
Anddyri íbúðar/stigi og stigaskör, teppi á gólfi, þaðan er útgengt út á svalir til suðurs og á baðherbergi.
Gangur liggur þar fyrir innan að öðrum rýmum eignarinnar, harðparket á gólfi. Gangi er að hluta til skipt upp (til aðgreina útleigueiningu).
Eldhús, harðparket á gólfi, innrétting með helluborði og ofni, stálvaskur, gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu (getur mögulega fylgt).
Stofa og borðstofa (þriðja herbergið), þaðan er útsýni að Ingólfsfjalli. Opið rými var áður þrjú rými (stofa, svefnherbergi og geymsla), hefur verið nýtt sem gistirými til útleigu til ferðamanna.
Svenherbergi I (stærra herbergið) innrétting/skápur, harðparket á gólfi.
Svefnherbergi II (minna herbergið) tvöfaldur fataskápur, harðparket á gólfi.
Baðherbergi, flísar á gólfi, upphengt salerni, vaskinnrétting og sturta, flísar á veggjum sturtu, gluggi.
Þvottahús/geymsla eru saman í rými, hillur, nýlegt korkparket á gólfi.
Eyravegur 21 steypt þriggja hæða hús þak er tvíhalla. Á jarðhæð er atvinnuhúsnæði á annarri og þriðju hæð eru íbúðir.
Á hæðinni fyrir neðan hafa verið útbúnar tvær íbúðareiningar úr sambærulegu húsnæði.
Lóð er sameiginleg, bílastæði og inngangur efri hæða eru á baklóð. Möl er í bílastæðum og innkeyrslu bílastæði eru sameiginleg. Í sameign á jarðhæð er inntaksrými.
Lóðin er 1159,0 m² leigulóð í eigu Sveitarfélagsins Árborgar.
Skráning eignarinnar hjá HMS:
Fastanúmer 226-8312.
Stærð: Íbúð 112.4 m².
Brunabótamat: 52.400.000 kr.
Fasteignamat: 47.550.000 kr
Byggingarár: 1972.
Byggingarefni: Steypa.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - byr@byrfasteignasala.is
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is
Kristín Rós Magnadóttir, löggiltur fasteignasali / lögfræðingur - kristin@byrfasteignasala.is
Sigurbjörg Halla Sigurjónsdóttir, löggiltur fasteignasali - silla@byrfasteignasala.is
Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
www.byrfasteign.is | Austurmörk 7, 810 Hveragerði - Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala