Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Knútur Bjarnason
Rúnar Þór Árnason
Gunnar Sv. Friðriksson
Hólmar Björn Sigþórsson
Linda Björk Ingvadóttir
Kristján Þór Sveinsson
María Steinunn Jóhannesdóttir
Ragnheiður Árnadóttir
Upplýsingar
svg
Byggt 2001
svg
143,2 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölu Lækur 1, 816 Ölfusi :

Fallegt 3 herbergja einbýlishús með innbyggðum bílskúr. Birt stærð eignar er 143,2 fm og þar af er íbúðahluti 103,1 fm og bílskúr 40,1 fm. Húsið er staðsett á fallegri og skjólgóðri 2907,5 fm eignarlóð í Ölfusi. Stutt er í alla helstu þjónustu í Þorlákshöfn eða Hveragerði. 

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is. 

Eignin skiptist í forstofu, stofu / borðstofu, eldhús, 2 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu, bílskúr og gróðurhús. 

Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er inn í flísalagða forstofu með góðum fataskápum og spegli. 
Stofan / borðstofa:  Rúmgóð og björt, útgengi út á ca. 30-40 fm suður sólpall, parket á gólfi. 
Eldhús:  Með fallegri innréttingu, eyja og borð, bakaraofn og helluborð, innbyggð uppþvottavél og ísskápur, flísar á gólfi.
Hjónaherbergi:  Rúmgott með miklu skápaplássi parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Gott parketlagt svefnherbergi.
Baðherbergi: Rúmgott, með góðri innréttingu, sturtuklefi og baðker, flísalagt í hólf og gólf. 
Þvottahús:  Hvít innrétting og vaskur, innangengt í bílskúr, flísar á gólfi. 
Bílskúr:  Rúmgóður 40,1 fm, gönguhurð, innangengt í íbúð, kalt vatn, flísar á gólfi. 
Geymsla:  Inn af bílskúr, hillur, flísar á gólfi. 

Húsið: Er byggt 2001 og er úr timbri. Aukin lofthæð er í öllum rýmum. Innréttingar frá Fagus að undanskildri innréttingu í þvottahúsi. Gólfhiti er í þvottahúsi og bílskúr. 
Lóð: Falleg og gróin 2907,5 fm eignarlóð. Framan við húsið er möl í innkeyrslu, á vesturhlið við inngang er timburpallur og stígur að sólpall á suðurhlið. Meginhluti hennar er með grasi, trjágróðri og beðum. 

Um er að ræða fallegt einbýlishús sem staðsett er á einstaklega fallegum sælureit í sveitinni þar sem stutt er í alla helstu þjónustu í Þorlákshöfn eða Hveragerði. Falleg eign fyrir þá sem vilja búa í sveit en þó ekki of langt frá þéttbýli.

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is. 
 

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík