Lýsing
Miklaborg kynnir:GLÆSILEG SÝNINGARAÐSTAÐA Á STAÐNUM-BÓKIÐ SKOÐUN - Þröstur Þórhallsson sími 8970634 eða throstur@miklaborg.is Miklaborg kynnir: Vesturvin 1 verður glæsileg bygging með metnaðarfullri hönnun á frábærum útsýnisstað í Vesturbæ Reykjavíkur. Húsið er staðsett örstutt frá verslun og þjónustu og í 10-15 mín. göngufæri frá miðbæ Reykjavíkur. Íbúðirnar í Vesturvin 1 ( Mýrargötu 43a ) eru til afhendingar í janúar 2025.
Íbúð 509 er 3ja herbergja íbúð á 5. hæð og snýr út að Mýrargötu. Íbúar hafa aðgang að verslun og þjónustu. Íbúðarrýmið skiptist í stóra og bjarta stofu og eldhús með eldunareyju. Tvö svefnherbergi, baðherbergi með sturtu og gestasnyrtingu. Frá stofu og eldhúsi er útgengt á tæplega 18,4 fm þakisvalir sem snúa í norður og njóta glæsilegs útsýnis. íbúðin er skráð 100,2 m² með 12,2 m² geymslu. Sérmerkt stæði í bílageymslu merkt B-37 fylgir.
Íbúðirnar afhendast með hágæða ítölskum innréttingum frá Cassina og er innréttingarþema þessarar íbúðar EIMUR. Vönduð tæki frá Miele og Siemens. Steinborðplötur og gólfsíðir gluggar. Allar íbúðir eru með gólfhita.
Nánar um verkefnið hér á heimasíðu þess HÉR.
Nánari upplýsingar veita sölumenn:
Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is
Friðjón Örn Magnússon lögg. fasteignasali í síma 6922704 eða fridjon@miklaborg.is
Jón Rafn Valdimarsson lögg. fasteignasali í síma 6955520 eða jon@miklaborg.is
Óskar Sæmann Axelsson lögg. fasteignasali í síma 691-2312 eða osa@miklaborg.is