Lýsing
Virkilega gott 207,0 m2 iðnaðarhúsnæði við í Desjamýri 1 í Mosfellsbæ. Húsnæðið sem er merkt 0106 samanstendur af 157,5 m2 iðanaðarrými með tveimur innkeyrsluhurðum við báða enda og 49,5 m2 millilofti með skrifstofu- og kaffiaðstöðu. Mikil lofthæð er aðalrými, stór innkeyrsluhurð er að framanverðu í norðuraustur og önnur minni bakatil í suðvestur. Einnig eru gönguhurðir beggja megin. Húsið er tvískipt í dag með léttum vegg á milli fremra og aftara rými með gönguhurð á milli. Annað rýmið getur þannig nýst til útleigu. Annars er hægt að taka niður vegginn með auðveldum hætti. Tvö salerni.
Húsið sem byggt er árið 2017 er úr forsteyptum einingum og límtré. Lóðin er mjög snyrtileg með góðu aðgengi og 57 bílastæðum í óskiptri sameign.
Sækja söluyfirlit strax
Nánari lýsing
Innkeyrsluhurðir eru rafdrifnar. Gólf í aðalrými er steypt, salernisaðstaða er hrá með upphengdu salerni og handlaug. Tré stigi upp á milliloft. Þar er parket á gólfi og lítil innrétting með vaski og tengi fyrir ísskáp ásamt salerni með upphengdu salerni og handlaug. Góður gluggi er með opnanlegu fagi, einnig er gluggi að aðalrýminu.
Vsk kvöð hvílir á húsnæðinu sem kaupandi í vsk skyldri starfsemi skal yfirtaka.
Húsnæðið getur verið afhent fljótlega.
Fasteignamat 2026: 74.350.000 kr
Allar nánari upplýsingar veita:
Júlíus Jóhannsson, lögg. fasteignasali
í félagi FF / julius@landmark.is / 823-2600
Monika Hjálmtýsdóttir, viðskiptafr., lögg. fasteignasali
í félagi FF / monika@landmark.is / 823-2800
Láttu okkur selja fyrir þig! Við veitum þér sölu- og kaupráðgjöf án skuldbindingar
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat