Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Vista
svg

3528

svg

2636  Skoðendur

svg

Skráð  27. maí. 2025

sumarhús

Grenilundur 8

806 Selfoss

17.900.000 kr.

641.577 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2209118

Fasteignamat

14.750.000 kr.

Brunabótamat

11.950.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1986
svg
27,9 m²
svg
2 herb.
svg
2 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 eða 862-9416 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 **  

FASTMOS kynnir: Sumarhús við Grenilund 8 í landi Miðfells við Þingvallavatn. Um er að ræða um 27,9 m2 sumarhús samkvæmt skráningu HMS auk viðbyggingar sem er ca. 15 m2, geymsluskúrs sem er ca. 8 m2 og gestahúss sem er ca. 6 m2. Húsið stendur er á 3.256 m2 eignarlóð og var byggt 1986. Eignin skiptist í stofu og eldhús, svefnherbergi, snyrtingu og geymslu. Í viðbyggingu er herbergi, lítið herbergi með tengi fyrir sturtu, snyrting með tengi fyrir salerni og forstofa með sérinngangi. Viðbygging og gangur milli sumarhúss og viðbyggingar eru ófrágengin að hluta. Húsið er hitað með nýlegri varmadælu og heitt neysluvatn kemur úr hitakút í geymslu. Við húsið er sólpallur og falleg lóð. Frá bílastæði er timburlögð gönguleið að húsinu. Sumarhúsasvæðið er lokað með rafmagnshliði sem hægt er að opna með síma eða fjarstýringu. Gott aðgengi er að vatninu fyrir báta. Frábær staðsetning og aðeins um klukkustundar akstur frá höfuðborgarsvæðinu.

** Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent **

Nánari lýsing:
Sumarhús:
Stofa og eldhús eru með nýlegu parketi. Eldhúsinnrétting og tæki eru einnig nýleg. 
Snyrting er með parketi á gólfi, salerni og handlaug.
Geymsla er inn af stofu/eldhúsi með hitakút og tengi fyrir þvottavél. 

Viðbygging: Herbergi, forstofa, herbergi, snyrting með tengi fyrir salerni, lítið herbergi með tengi fyrir sturtu.
Geymsluskúr er ca. 8 m2 að stærð.
Gestahús er ca. 6 m2 að stærð.

Góður sólpallur er við hús með girðingu. Hluti af sólpallinum er yfirbyggður. Möguleiki er fá búslóð, utan persónulegra muna, með í kaupum á eigninni. Árgjald í félag sumarhúsaeiganda á svæðinu er ca. 35.000 kr. Kalt vatn kemur úr borholu á svæðinu og er vatnsgjald innifalið í félagsgjaldi. 

Samkvæmt gildandi deiliskipulagi mega hús vera allt að 100 m2 (birt stærð) og lágmarksstærð er 30 m2 fyrir aðalhús. Heimilt er að byggja eitt aukahús, allt að 30 m2. Sjá nánar upplýsingar í deiliskipulagi.

Verð kr. 17.900.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
21. júl. 2021
9.010.000 kr.
9.950.000 kr.
10101 m²
985 kr.
13. maí. 2020
8.420.000 kr.
8.000.000 kr.
27.9 m²
286.738 kr.
8. sep. 2014
4.727.000 kr.
6.500.000 kr.
27.9 m²
232.975 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ