Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2019
147,3 m²
4 herb.
3 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Bílastæði
Lyfta
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Eignamiðlun kynnir til sölu stórglæsilega íbúð á 5. hæð í Austurhöfn ásamt einu bílastæði í lokuðum bílakjallara fyrir íbúa hússins. Íbúðin er um 150 fm og með tvennar svalir. Útsýni er úr íbúðinni í austur að Esjunni og Móskarðshnjúkum, og í vestur yfir borgina. Lyfta opnast beint inn í íbúðina. Möguleiki er á að annað bílastæði sem rúmar 1-2 bíla geti fylgt eigninni að auki.Glæsileg bygging með metnaðarfulla hönnun á einstökum stað við Reykjavíkurhöfn. Arkitektar hússins eru T. ark. Arkitektar. Stutt er i einstaka menningu og mannlíf borgarinnar. Á jarðhæð hússins er Hafnartorg gallery með úrval veitingastaða og verslana. Harpa tónlistar - og ráðstefnuhús, og Reykjavík Edition 5 stjörnu hótel, standa við hlið hússins, á lifandi höfn Austurbakkans. Innangengt er úr bílakjallara á Reykjavík Edition og í Hörpu.
Íbúðin skiptist í: stóra forstofu, gestasnyrtingu, þvottahús, alrými | stofu | eldhús, 3 svefnherbergi með skápum, tvö þeirra með aðliggjandi baðherbergi. Eitt herbergjanna nýtist sem skrifstofa.
Íbúð 510 er glæsileg og fáguð hönnunaríbúð á 5 hæð á einstökum byggingareit á Austurbakka í Reykjavík. Íbúðin stendur við Reykjastræti, sem er göngugata, og stóran garð fyrir íbúa í vestur. Ekið er niður innkeyrsluramp inn í aðgangsstýrðan kjallara frá þremur stöðum: Bryggjugötu, Hörpu og Hafnartorgi. Standandi koparklæðning er á húsinu.
Allar innréttingar eru vandaðar og sérsmíðaðar á Ítalíu af Gili Creations. Aukin lofthæð. Vönduð tæki eru í eldhúsi frá Miele og Liebherr. Kvarts steinn er á borðum og marmarasteinflísar á stórri eldhúseyju. Snjallheimiliskerfi með vandaðri ljósastýringu. Virkt hljóðkerfi í völdum rýmum, en lagt fyrir í öllum rýmum. Gegnheilt eikarparket er á allri íbúðinni. Í votrýmum eru flísar. Fullkomið loftræstikerfi með hljóðdeyfðum loftrásum.
Lyfta opnast beint inn í íbúðina i forstofu með fataskápum.
Gestasnyrting með innréttingu er inn af forstofu.
Stofa og eldhús mynda alrými. Gólfsíðir gluggar eru í alrými sem veita mikla náttúrulega birtu. Afar vönduð tæki í eldhúsi frá Miele og Liebherr.
Svefnherbergin eru samtals þrjú. Öll herbergin eru með fataskápum. Tvö svefnherbergi eru með aðliggjandi baðherbergjum.
Tvennar svalir eru í íbúðinni, í austur og vesturátt. Ljós harðviðarklæðning er innan á svölum og lýsing.
Lokaður garður ofan á 1. hæð hússins er hannaður af Landslag. Garðurinn er sólríkur og skjólsæll með fallegum gróðri og lýsingu. Sérgeymsla. Tvær hjóla- og vagnageymslur eru í sameign. Mynddyrasími fyrir utan útidyr. Anddyri er læst óviðkomandi umferð. Leyfi er fyrir gæludýrahaldi í húsinu.
Nánari upplýsingar veitir:
Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali, í síma 867-0968 eða unnar@eignamidlun.is.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
15. júl. 2022
84.000.000 kr.
217.000.000 kr.
268.8 m²
807.292 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025