Opið hús: Fífusel 22, 109 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 01 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 3. júní 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Einkastæði í bílskýli með hleðslustöð fyrir rafbíla. Í húsinu sem hefur verið talsvert endurnýjað
eru alls 5 svefnherbergi. Eignin er vel staðsett í Seljahverfinu og eru tvær matvöruverslanir
í göngufæri ásamt skóla, leikskóla og annarri þjónustu.
Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er eignin skráð alls 242,8 fm þar af er stæði í bílahúsinu 26 fm.
Nánar um eignina :
Neðri hæð:
Anddyri með fataskáp og með flísum á gólfi.
Gestasalerni er við anddyri er gestasalerni með hvítri innréttingu og flísum á gólfi.
Eldhús er með fallegri hvít innrétting með flísum á vegg milli efri og neðri hluta innréttingarinnar með góðu skápaplássi.
Steinplata frá granítsmiðjunni kvartssteinn Háglans Ikea innrétting
Innbyggð Bosch heimilistæki frá Smith og Norland. Ofn, örbylgjuofn og 80 cn spanhelluborð. Flísar á gólfi.
Stofa er rúmgóð, stofa og borðstofa í opnu rými eldhúsinu með nýlegu parketi á gólfi, Frá stofunni er gengið út á austur svalir.
Efri hæð:
3 barnasvefnherbergi með parketi á gólfi.
Hjónaherbergi með fataherbergi og er hægt að ganga út á austursvalir. Dúkur á gólfi.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi með sturtuklefa, baðkari, handklæðaofn og flísar á hluta á vegg og á gólfi.
Fallegur stigi sem fer bæði upp á efri hæðina ásamt niður í kjallara.
Kjallari:
Sér inngangur er inn í kjallara, komið er inn í anddyri , þar er þvottahús með ljósri innréttingu ásamt 2 geymslum.
Gengið er inn í hol þar sem er fatahengi og inngangur í 50 FM auka íbúð.
Auka íbúð um 50 FM:
Opin stofa og eldhús í einu rými með flísum á gólfi.
Svefnherbergið er með fataskáp og flísum á gólfi.
Baðherbergið er með sturtubotn og flísalagt.
Hurð beint út í garðinn frá íbúðinni
Framkvæmdir Fífusel 22 að sögn seljenda.
2016 Desember var gestabaðherberið endurgert. Flísalagt og nýr vaskur blöndunartæki + nýr handklæðaofn.
2018 Eldhús var endurnýjað milliveggur í eldhúsi fjarlægður og opnað inní stofu., Steinplata frá granítsmiðjunni kvartssteinn Háglans ikea innrétting.
Bosch heimilistæki frá Smith og Norland 80 cm spanhelluborð innbyggður ofn með hitamæli + innbyggður örbylgjuofn og rafmagnstenglum í eldhúsi fjölgað
LG tvöfaldur ísskápur keyptur nýr 2022 með klakavél.
2021 var skipt um alla ofna í stofu, einnig í öllum 4 svefniherbergjum uppi.
2021 voru sett Zenuss sérsmíðuð rafdrifin gluggatjöld í stofu og eldhúsglugga, fjarstýring og app í síma hægt að hafa tímastillingu.
2021 var skipt um gólfefni á miðhæð Ac5 harðparket frá Birgisson.
Snjóbræðsla sett á í U inu og blómabeð og tengimöguleiki fyrir útiljós (held 2019-2020)
Garður lokaður af með grindverki og smíðað blómabeð
2021 Bílskýli rafbílavætt. Einkastæði í bílskýli og sett upp Elvi 22kw hleðslustöð í stæði
1 auka hleðslustöð úti sem er sameiginleg fyrir alla og gesti líka
Ný sjálfvirk hurð sett í bílskýli og skipt um báðar útihurðar í bílskýli.
Skipt um alla glugga í bílskýli.
Hússjóður þ.e fyrir bílakjallara og sameiginleg útisvæði í U-inu 15.000 á mánuði
Ekkert félag er fyrir raðhúsin, en samvinna er með t.d útlit að utan.
Þak málað ágúst 2023
Um er að ræða frábæra eign með góðu skipulagi á fjölskylduvænum stað í Seljahverfinu þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, leikskóla og skóla.
Nánari upplýsingar veitir: Inga Reynis löggiltur fasteignasali í síma 820-1903 eða á inga@gimli.is eða gimli@gimli.is
Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.
Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.
Gimli gerir betur...