Lýsing
Húsið er skemmtilega skipulagt, klætt með báru og með góðan garð á móti sólu.
* Eignin afhendist á byggingarstigi 2 - fokheld bygging en er komin mun lengra.
* Afhendingartími er samkomulag.
* Verð á byggingarstigi 2: 51.9 milljónir.
* Möguleiki er að fá húsið lengra komið eftir samkomulagi. sjá Elsugötu 24 sem er á sölu tilbúin til innréttinga.
Nánari lýsingu má fá hjá fasteigansala. Halldór Freyr Sveinbjörnsson - 6932916 - halldor@fastgardur.is
Skipulag eignar: Anddyri, gangur, þrjú svefnherbergi, í opnu alrými er stofa / borðstofa og eldhús, baðherbergi/þvottahús og Bílskúr.
Skilalýsing á byggingarstigi 2 – fokheld bygging: Nánari lýsing hjá fasteignasölu.
Útveggir
Útveggir eru klæddir með loftræstri liggjandi báruálklæðningu, grá að lit sem er brotin upp með standandi klæðningu.
Þak
Þak er hefðbundið niðurtekið kraftsperruþak með 18° þakhalla. Ofan á sperrur kemur borðaklæðning þakpappi og að lokum bárujárn, svart að lit. Þak er einangrað með 200mm þakull.
Þakkantar og vindskeiðar
Þakkanntar og vindskeiðar eru úr timbri svartar að lit, undirklæðningin er einnig úr timbri í svartar lit. Rennur eru innfeldar í þakkant og eru úr stál-Svartur, tengdar frárennslislögnum í púkk á lóð. Niðurfallsrör eru 70mm úr sama efni.
Gluggar og útihurðir
Gluggar og hurðir eru úr ál/timbri hvítir að innan, svartir að utan að lit, gler í gluggum er tvöfalt K-einangrunargler. Tvöfalt samlímt öryggisgler er í gólfsíðum gluggum/hurðum, sem og öllum gluggum/hurðum sem eru allt að 600mm frá gólfi. Allar útihurðir (hurðarflekar) eru 900 mm að breidd.
Aðgengi og lóð
Lóð skilast grófjöfnuð og verður búið að skipta um jarðveg í bílaplani og setja í mulning. Forsteypt sorpskýli fyrir þrjár tunnur staðsett skv. teikningum. Fyrirkomulag sólpalla og skjólveggja ákvarðast og útfærist af endanlegum kaupendum íbúða. Verönd verður þökulögð að hluta. Frost frítt efni ca. 2m frá húsi að þökum. Útiljós utan á húsi verða uppsett, lagnaleiðir fyrir ljós verða samkvæmt teikningu, börkum verður komið inn í hús en ótengdir.
Frágangur innanhúss:
Gólf
Botnplata er röraslödduð tilbúin til flotunar og ílagnar í votrýmum.
Innveggir
Veggir milli íbúða eru byggðir upp úr timbur grind, einangraðir og klæddir með gifsi íbúðarmegin. Veggur milli skúrs og íbúða eru byggðir úr timburgrind, einangraðir og klæddir með gifsi. Rafmagnsgrind kláruð þar sem við á.
Útveggir að innan:
Útveggir einangraðir og gengið frá rakasperrum. Einnig verður rafmgansgrind kláruð.
Loft
Kraftsperrur eru í húsinu og öll loft eru niðurtekin. Komnir eru skilveggir milli notendaeininga, einangraðir og klæddir tvöföldu gifsi. Hið sama gildir um skilveggi innbyggðra bílskúra. Loft verður einangrað og gengið frá rakasperrum. Einnig verður rafmgansgrind kláruð.
Hitalögn
Hitalagnir eru í steyptar í botnplötu, tengikistur óuppsettar og ófrágengnar. Heimtaug hitaveitu ótengd, ídráttarrör tilbúin út fyrir hús.
Neysluvatnslagnir
Neysluvatnslagnir eru úr rör í rör kerfi í steypta botnplötu, óuppsettar og ófrágengnar. Heimtaug kaldavatns ótengd, ídráttarrör tilbúin út fyrir hús.
Fráveitulagnir
Skólplagnir eru tengdar fráveitu kerfi í götu. Frárennslislagnir eru tengdar í grjótpúkk á lóð.
Rafmagn
Heimtaugar rafmagns og boðtauga ótengdar ídráttarrör tilbúin út fyrir hús.
Annað:
· Byggingargjöld og gatnagerðargjald eru greidd.
· Búið er að taka inn vatn og rafmagn og borga tiltekin gjöld.
· Kaupandi greiðir 0,3 % skipulagsgjald þegar það er lagt á við endanlegt brunabótamat.
· Allar teikningar liggja fyrir þ.e. aðalteikningar, sökkulteikningar, burðarvirkisteikningar, glugga- og hurðateikningar, lagnateikningar og rafmagnsteikningar.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður