Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Þórir Helgi Sigvaldason
Katla Hanna Steed
Jórunn Skúladóttir
Þórunn Pálsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Skipholt 1503

105 Reykjavík

102.900.000 kr.

1.244.256 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2522307

Fasteignamat

73.300.000 kr.

Brunabótamat

48.350.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1960
svg
82,7 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Lyfta

Lýsing

Háborg kynnir: Íbúð 503, rúmgóða 3ja herbergja íbúð í fallegu enduruppgerðu lyftuhúsi í útjaðri miðborgarinnar. Inngangur frá svalagangi. Forstofa með góðum skápum, Tvö svefnherbergi 15,8 fm og 8,1 fm. Stórt bjart alrými með útgengi á 12,8 fm suðursvalir. Baðherbergi með sturtu og þvottaaðstöðu. Harðparket á gólfum og innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Sjálf íbúðin er 73 fm og geymsla í kjallara 9,7 fm. Einstakar sameiginlegar þaksvalir á 5. hæð. Örstutt eða í göngufæri við matvöruverslun og niður á Hlemm sem er að umbreytast í grænt og vænt almenningsrými.

Sjá heimasíðu verkefni:

Húsið: Skipholt 1 er glæsileg endurbygging á frábærum stað í hjarta Reykjavíkur á horni Stórholts og Skipholts mót hásuðri. Í reisulegu húsi þar sem Listaháskóli Íslands var starfræktur í áratugi hafa nú verið innréttaðar 34 heillandi íbúðir og tvö atvinnurými. Einstakar sameiginlegar þaksvalir á 5.hæð hússins auka lífsgæði allra íbúa, en þar er sólríkt og magnað útsýni til sjávar og fjalla.
HAF studio kom að hönnun og efnisvali í íbúðirnar. Allar íbúðir afhentast fullbúnar með 8mm harðparketi frá Agli Árnasyni , og innbyggðum ísskáp og uppþvottavél frá AEG.

Hönnun: Innréttingar koma frá GKS, flísar frá Harðviðarvali, hurðar frá Agli Árnasyni, blöndunartæki í eldhúsi og baðherbergi eru frá Grohe, sturtutæki eru einnig frá Grohe, salerni eru með hæglokandi setum, heimilistæki eru frá AEG (ofn, helluborð, innbyggður ísskápur, vifta með kolafilter og uppþvottavél) Hefðbundið ofnakerfi er á íbúðum með hitastýribúnaði frá Danfoss.

Garðurinn: Á bak við húsið er heillandi og skjólgóður inngarður hannaður af Hermanni Ólafssyni landslagsarkitekt.
Þar kallast fjölbreyttur gróður á við hellur og útskorið malbik sem myndar göngustíg sem liðast eins og lækur eftir garðinum. Pollaljós og garðljós gefa fallega birtu. Innst til hægri er upplyft hellulagt dvalarsvæði.
Hér er allt sem þarf fyrir nútímalegan miðborgarlífsstíl. Fjöldi veitingastaða og fjölbreytt þjónusta í stuttu göngufæri að ógleymdri útivistarperlunni Klambratúni.

Íbúar í Skipholti eiga rétt á íbúakorti og mega þá leggja í gjaldskyldum stæðum á svæði H á myndinni (sjá mynd í myndasafni) auk þess sem fullt er af ógjaldskyldum stæðum td í Skipholtinu. Íbúakortið kostar kr. 1.400- á mánuði fyrir rafmagns og vetnis bifreiðar, en kr. 2.800 fyrir aðrar tegundir bifreiða.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á.
Allar frekari upplýsingar gefur Jórunn lögg. fasteignasali í síma 845-8958 eða jorunn@haborg.is

img
Jórunn Skúladóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Háborg fasteignasala
Grensásvegur 1, 108 Reykjavík

Háborg fasteignasala

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
phone
img

Jórunn Skúladóttir

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík

Háborg fasteignasala

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
phone

Jórunn Skúladóttir

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík