Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2019
129,5 m²
4 herb.
2 baðherb.
3 svefnh.
Sameiginl. inngangur
Bílastæði
Lyfta
Laus strax
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Frábær 4 herbergja íbúð á 3. hæð í nýlegu, vel staðsettu húsi í miðbæ Reykjavíkur. Gólfsíðir gluggar. Frábært útsýni. Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning. Tvö bílastæði í bílageymslu fylgja íbúðinni.Bókið skoðun. Allar upplýsingar gefur Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, sími 899-8815, kari@eignamidlun.is
Um er að ræða nánar tiltekið íbúð 307 við Frakkastíg 8c, 101 Reykjavík, F2004746. 4 herbergja íbúð á 3. hæð. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 129,5 fm, þar af er íbúðarrými 121,6 fm og sérgeymsla er 7,9 fm. Íbúðin skiptist í anddyri, opið eldhús og stofu í stóru alrými, þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi. Sérgeymsla. Íbúðin er nýleg og öll hin snyrtilegasta að innan. Niðurlímt parket á gólfum. Flísar á baðherbergjum.
*** Sækja söluyfirlit ***
Nánari lýsing eignar:
Anddyri, með góðum fataskápum, parket á gólfi.
Eldhús er opið með stórri innréttingu með eldhúseyju (Voke3). Steinn á borðum. Vönduð eldhústæki. Parket á gólfi.
Stofa er rúmgóð, opin og björt með stórum gólfsíðum gluggum. Parket á gólfi. Útgengt er á austur svalir úr stofu. Möguleiki er á svalalokun.
Svefnherbergi 1 er rúmgott með fataskápum. Parket á gólfi.
Baðherbergi 1 er inn af svefnherbergi 1. Snyrtileg innrétting, baðkar, upphengt salerni. Handlaug. Flísar í hólf og gólf. Gólfhiti.
Svefnherbergi 2 er með fataskápum. Parket á gólfi.
Svefnherbergi 3 er með fataskápum. Parket á gólfi.
Baðherbergi 2 er með snyrtilegri innréttingu. Walk-in sturta. Upphengt salerni. Handlaug. Gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu. Flísar í hólf og gólf. Gólfhiti.
Sérgeymsla (7,9 fm, merkt 00-35) er í kjallara hússins.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign í kjallara hússins.
Tvö bílastæði í bílageymslu í kjallara hússins (merkt B25 og B26), annað er með uppsettri hleðslustöð.
Fasteignamat 2026 = 120.600.000 kr.
Hiti er sameiginlegur samkvæmt hlutfallstölu. Eignin er kynt með ofnakerfi í herbergjum og alrými en gólfhita á baðherbergjum. Rafmagn er á sérmæli fyrir íbúðina.
Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup og 25. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
31. des. 2021
98.350.000 kr.
88.000.000 kr.
129.5 m²
679.537 kr.
9. mar. 2018
8.530.000 kr.
156.070.000 kr.
259.5 m²
601.426 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025