Verið velkomin á opið hús laugardaginn 14 júní frá 12:00 - 13:00
Lýsing
Bókið skoðun hjá Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse í síma 7927576, eða gudmunda@gimli.is
Eignin samanstendur af þremur svefnherbergjum, eldhúsi, stofu/borðstofu með útgengi á verönd, baðherbergi með sturtu, verkstæði/vinnustofu, tvær geymslur, ásamt mjög góðu svefnlofti, tengi fyrir þvottavél á gangi. Veröndin er einstaklega rúmgóð með glæsilegu útsýni yfir tungufljót. Heitur pottur með loki er á verönd.
Hér gefst gott tækifæri til að eignast vel staðsett sumarhús á útsýnislóð með miklu gistiplássi. Bústaðurinn hefur fengið gott viðhald og er einstaklega vel staðsettur í landi Heiðar í Bláskógabyggð þar sem ýmsa þjónustu er að finna. Húsið er í um það bil 10 mínútna fjarlægð frá Geysissvæðinu, Laugarvatni, Reykholti og Flúðum þar sem jafnframt er mikla þjónustu og afþreyingu að finna, sundlaugar, veitingahús og verslanir.
Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er inn í flísalagða forstofu af verönd, inn af forstofu er geymsla.
Svefnherbergi I/hjónaherbergi: Gegnheill askur á gólfi, fataskápar, gluggar í norður og austur, útgengt á verönd.
Svefnherbergi II: Gegnheill askur á gólfi, gluggar í norður og vestur.
Svefnherbergi III: Gegnheill askur á gólfi, gluggi til norðurs.
Baðherbergi: Flísalagt, Góð innrétting með vaski, sturtuklefi, gólfhiti, gluggi til norðurs.
Eldhús: Gegnheill askur á gólfi. Opið inn í borðstofu/stofu. Góð innrétting sem er nýlega endurnýjuð.
Stofa/borðstofa: Opin, björt og rúmgóð með hurð út á verönd. Glæsilegt útsýni yfir Tungufljót. Mjög góð lofthæð.
Svefnloft: Gengið er upp um góðan stiga af gangi. Rúmgott tvískipt loft með miklu gistiplássi, gluggi til norðurs auk þakgluggan. Opið niður í stofu.
Geymsla: Góð geymsla/búr er í húsinu á samt 14,4fm skráðri geymslu sem í dag er nýtt sem verkstæði. Að auki er viðbyggð geymsla, ca 10 fm og yfirbyggt rými á milli húss og verkstæðis.
Nýleg varmadæla með AT HOME stýrikerfi.
Eignin Koðrabúðir 14 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 226-4371, birt stærð 94.4 fm. Nánar tiltekið eign merkt 01-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Nánari upplýsingar veitir: Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 7927576, tölvupóstur gudmunda@gimli.is eða gimli@gimli.is
Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.
Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við? Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is
Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu
Gimli á Facebook
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.
Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.
Gimli gerir betur...