Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Heiðar Pálsson
Árni Björn Kristjánsson
Helen Sigurðardóttir
Hrafnkell Pálmarsson
Vista
svg

731

svg

472  Skoðendur

svg

Skráð  30. maí. 2025

hæð

Borgarholtsbraut 68

200 Kópavogur

109.900.000 kr.

701.340 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2059220

Fasteignamat

93.100.000 kr.

Brunabótamat

70.350.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1953
svg
156,7 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 4. júní 2025 kl. 17:15 til 17:45

Opið hús: Borgarholtsbraut 68, 200 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 4. júní 2025 milli kl. 17:15 og kl. 17:45.

Lýsing

Palsson Fasteignasala kynnir:

Heillandi og fjölskylduvæn eign með auka íbúð á eftirsóttum stað í hjarta Kópavogs
Við kynnum til sölu vel skipulagða fimm herbergja neðri hæð í tvíbýlishúsi með fallegum og rótgrónum garði við Borgarholtsbraut 68 í Kópavogi. Eignin er staðsett í rólegu og barnvænu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, leikskóla, grunnskóla, Kópavogslaug og vinsæla leikvelli.
Eignin er skráð 107,7 fermetrar og aukaíbúðin er 49 fermetrar. 

-  Frábær staðsetning 
-  Auka íbúð í bakhúsi með útleigumöguleikum
-  Einkabílastæði


Fyrir nánari upplýsingar:
Tinna Bryde A.Lgf í síma 660-5532 eða tinna@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í síma 775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is

www.verdmat.is
www.eignavakt.is
Góð ráð fyrir kaupendur 

Fyrirhugað fasteignamat 2026 er 105.800.000 kr.

Eignin skiptist svona:
Sameiginleg forstofa með efri hæð
Breiður og bjartur gangur með innfelldu fatahengi. Gangurinn tengir saman allt rými íbúðarinnar. 
Hjónaherbergi með fataskáp og parketi á gólfi
Tvö svefnherbergi með parketi á gólfi
Rúmgóð og björt stofa og borðstofa með stórum glugga út í garð
Eldhús með snyrtilegri hvítri innréttingu og dúk á gólfi
Baðherbergi með sturtu, nýlegri innréttingu og upphengdu salerni
Þvottahús sem er sameiginlegt með efri hæð

Aukaíbúð í bakhúsi:
Á lóðinni er rúmgott, 49 fm bakhús sem er innréttað sem íbúð.
Skipulag íbúðar er eftirfarandi: Forstofa/gangur, eldhúskrókur, stofa, svefnherbergi með fataskáp og baðherbergi. 
Dúkur er á gólfum. Húsið hentar mjög vel fyrir útleigu, heimagistingu, eða sem frábær aðstaða fyrir ungling eða fjölskyldumeðlim.

Lóð og aðstaða:
Um 1.000 fm rótgróin lóð sem nýtist vel fyrir börn, garðyrkju og samveru
Á lóðinni er sandkassi, sólpallur og garðhúsgögn
Lagning fyrir rafhleðslustöð fyrir rafbíl við einkabílastæði (sem fylgir neðri hæð) Pláss fyrir 2–3 bíla. 

Viðhald og endurbætur:
Ofna- og hitavatnslagnir endurnýjaðar 2005
Frárennslislagnir endurnýjaðar 2006 (frá kjallara og út í brunn á baklóð)
Þakplötur endurnýjaðar á framhúsi 2005 og á auka íbúð í bakhúsi 2024
Framhús málað og sprunguviðgert sumarið 2024
Gluggar og gler vel viðhaldið, allt gler endurnýjað 2002 

Umhverfi og uppbygging:
Kársnesið er í örum vexti og er að þróast hratt. Handan götunnar er stór leikvöllur (Stelluróló) og sparkvöllur. Í götunni eru fleiri stærri leiksvæði fyrir börn, sundlaug, skóli og leikskóli, tónlistarsalur og listasafn. Einnig er sutt í Sky Lagoon yst á Kársnesinu. Eignin hentar einstaklega vel fyrir fjölskyldufólk sem vill rólegt og rótgróið umhverfi með alla helstu þjónustu í göngufæri. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík
Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík