Upplýsingar
Byggt 1963
217,2 m²
8 herb.
3 baðherb.
6 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Sérinngangur
Opið hús: 3. júní 2025
kl. 17:00
til 17:30
Lýsing
Betri Stofan fasteignasala Borgartúni 30 kynnir nýtt í einkasölu. Mikið endurnýjuð og rúmgóð eign á þremur hæðum í tvíbýlishúsi ásamt bílskúr við Álfhólfsveg í Kópavogi. Skjólgóð og falleg lóð með veröndum, potti og skjólveggjum. Eignin er skráð samtals 217 fm og telur 6 svefnherbergi, góð alrými og baðherbergi á hverri hæð. Um er að ræða alla húseignina að undanskildri 72 fm sér íbúð á jarðhæð sem snýr að götu. Eignin telur á aðalhæð gott anddyri, bjart og fallegt stofurými með útgengi á sólríka verönd, stórt og fallegt eldhús, baðherbergi og tvö stór herbergi. Á rishæð eru þrjú herbergi, snyrting og geymsla. Á jarðhæð er þvottahús, rúmgott baðherbergi og svefnherbergi. Bílskúrinn er rúmgóður og gott bílaplan framan við húsið.
Nánari lýsing:
Aðalhæð: Komið er inn í flísalagða forstofu með fatahengi. Þaðan er gengt inn í hol og eldhús með flísum á gólfi. Í eldhúsi er stór nýleg innrétting, borðkrókur og útgengt á lóð. Stofan er parketlögð, þar er góð lofthæð, stórir gluggar og fallegt útsýni, úrgengt út á fína verönd yfir bílskúrnum sem á verönd á baklóð. Innaf stofu hefur verið stúkað af svefnherbergi sem hæglega má opna aftur (parket er undir veggjum). Baðherbergið á hæðinni er nýlega endurnýjað, flísalagt og með góðri innréttingu. Á hæðinni er einnig annað rúmgott svefnherbergi ásamt fataherbergi.
Rishæð: Þar er gert ráð fyrir þremur svefnherbergjum, eitt þeirra er í dag opið og nýtist vel sem sjónvarpshol. Á hæðinni er einnig baðherbergi sem ekki er í notkun ásamt geymslu.
Jarðhæð: Telur eitt svefnherbergi, þvottahús með innréttingu, tæki í vinnuhæð og fínt flísalagt baðherbergi með góðri sturtu. Lítill gluggi er á öllum rýmum.
Lóðin er stór, gróin og falleg með veröndum og heitum potti. Skipting lóðar er skýr milli eignarhluta.
Innréttaður útiskúr er yfir hluta bílskúrsins. Bílskúrinn er fullbúinn með vatni og hita.
Eignin hefur verið mikið endurnýjuð og endurinnréttuð á síðustu árum og má þar nefna gólfefni, eldhús, baðherbergi ásamt því sem að skipulagi eignarinnar hefur verið breytt.
Þetta er falleg útsýniseign með mikla möguleika varðandi innra skipulag.
Allar nánari upplýsingar veitir Atli S. Sigvarðsson lgf. í síma 899-1178 eða atli@betristofan.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.