Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Heiðar Pálsson
Árni Björn Kristjánsson
Helen Sigurðardóttir
Hrafnkell Pálmarsson
Vista
einbýlishús

Hólastekkur 6

109 Reykjavík

139.800.000 kr.

635.166 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2047131

Fasteignamat

120.850.000 kr.

Brunabótamat

112.800.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1971
svg
220,1 m²
svg
7 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
Opið hús: 4. júní 2025 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Hólastekkur 6, 109 Reykjavík. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 4. júní 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Palsson Fasteignasala kynnir:

Afar fallegt og vel skipulagt 4-5 herbergja einbýlishús með bílskúr og bílskýli teiknað af Kjartani Sveinssyni. Eftirsótt og fjölskylduvæn staðsetning í rólegum botnlanga í Stekkjunum með glæsilegu útsýni.

** 3-4 svefnherbergi
** Skjólsæll og gróinn garður sem vísar í suður
** Fallegt útsýni 


Nánari upplýsingar veita:
Hrafnkell Pálmarsson Lgf / MBA. í síma nr 660-1976 eða hrafnkell@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð skv. HMS er 220,1m2, þar af bílskúr 21,1m2.

Eignin skiptist í efri hæð: anddyri, gestasalerni, hol, eldhús, borðstofu, stofu, skrifstofu, 3-4 svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Neðri hæð er með 2 rúmgóðar geymslur.

Nánari lýsing
Efri hæð:
Anddyri er með fataskáp og flísum á gólfi.
Gestasalerni er inn af anddyri og er flísalagt í hólf og gólf.
Hol er rúmgott og bjart með stórum glugga. Tengir saman eldhús, stofu og svefnherbergisgang. Parket á gólfi.
Eldhús er með sjarmerandi viðarinnréttingu, borðkrók og stóran búrskáp. Frábært útsýni. Parket á gólfi.
Borðstofa er rúmgóð með stóran glugga með glæsilegu útsýni.
Stofa er rúmgóð með útgengi á svalir sem vísa í vestur og norður. Parket á gólfi.
Skrifstofa er inn af stofu og væri hægt að nýta sem herbergi eða breyta og stækka stofu. Parket á gólfi.
Svefnherbergisgangur er með útgengi út á skjólgóða viðarverönd og gróinn garð sem vísar í suður.
Svefnherbergi I er mjög rúmgott enda á teikningu er það tvö svefnherbergi sem sameinuð hafa verið í eitt. Fataskápur og parket á gólfi.
Svefnherbergi II er með fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi III er rúmgott með fataskáp og útgengi út í garð. Parket á gólfi.
Baðherbergi er með baðkari, salerni og handlaug. Flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús er rúmgott með skáp og vaski. Dúkur á gólfi.

Neðri hæð:
Gengið er niður úr anddyri á efri hæð en einnig er sérinngangur fyrir neðri hæðina.
Tvær rúmgóðar geymslur eru á neðri hæðinni.

Bílskúrinn er 21,1m2 og við hlið hans er bílskýli.
Garðurinn er gróinn og vísar í suður með viðarverönd.

Hólastekkur 6 er sérlega falleg eign í vinsælu og grónu hverfi í nálægð við Elliðaárdalinn og með alla helstu þjónustu í næsta nágrenni.
Eign sem vert er að skoða.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík
Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík