Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Vista
svg

17

svg

13  Skoðendur

svg

Skráð  2. jún. 2025

fjölbýlishús

Valshlíð 1

102 Reykjavík

133.900.000 kr.

1.107.527 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2532641

Fasteignamat

10.750.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
120,9 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Hjólastólaaðgengi
svg
Lyfta
svg
Svalir

Lýsing

Hlíðarhorn.is kynnir Valshlíð 1 - Íbúð 03-03. Íbúðin er staðsett í Hlíðarhorni, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðin afhendist fullbúin í lok ágúst 2025.

Sendu fyrirspurn á hlidarhorn@s8.is eða hringdu í síma 4152500 og fáðu allar upplýsingar um íbúðina eða bókaðu skoðun beint hjá byggingaraðila. Á sölusíðu eignarinnar í eCASA færðu með rafrænum skilríkjum aðgang að söluyfirliti íbúðar og öðrum skjölum er varða eignina og getur jafnvel gert tilboð í íbúðina beint.

Glæsileg og vönduð 4ja herbergja þakíbúð á 3. hæð í Hlíðarhorni. Birt stærð er 120,9 fm þar af 8,9 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús með eyju og stofu/borðstofu í opnu rými, tvennar svalir, gang, 3 svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Íbúðin afhendist með hágæða sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens og Witt í hæsta gæðaflokki, hágæða ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Mói 2.

Nánari lýsing: Í anddyri eru góðir fataskápar. Gengið er úr anddyri inn gang inn í rúmgott alrými, eldhús með eyju og stofu/borðstofu með útgengi á vestursvalir með óhindruðu útsýni. Taupe grá eldhúsinnrétting með mattri áferð, svartur quartz-steinn á borðum og milli skápa og hágæða ítölsk blöndunartæki úr byssubláu stáli. Öll eldhúsraftæki af hæsta gæðaflokki. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Rúmgott hjónaherbergi með góðum skápum og útgengi á svalir í austur. Tvö rúmgóð svefnherbergi með fataskáp. Baðherbergi með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Gráar steinflísar á gólfi og veggjum, taupe grá innrétting með mattri áferð og speglaskápur. Blöndunartæki á baði úr byssubláu stáli. Innbyggð blöndunartæki í sturtu. Þvottaherbergi er með ljósri innréttingu, gráum steinflísum og vaski. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara er í vinnuhæð í innréttingu. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0005. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.

ATH. Kaupendur greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 einstaklega vandaðar og fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Íbúðirnar eru sérstaklega vandaðar í alla staði, hvað varðar hönnun, innréttingar og tæki. Einungis er unnið með bestu fáanlegu lausnir og efni og umhverfisvernd höfð að leiðarljósi. Hver íbúð hefur sérstæða loftræsingu með varmaendurvinnslu og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og við, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingarar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.

Á heimasíðu Hlíðarhorns, www.hlidarhorn.is, getur þú skoðað allar þær fjölbreyttu íbúðir sem eru og verða til sölu í Hlíðarhorni, á þessum frábæra stað í miðbænum.

Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins, ásamt upplýsingum er varða hönnun byggingarinnar.

ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu byggingaraðila og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir í auglýsingu geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingaþema.

Kaupendur greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

Gjöld sem kaupandi þarf einnig að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Hlíðarhorn

Hlíðarhorn

Borgartún 29, 105 Reykjavík
Hlíðarhorn

Hlíðarhorn

Borgartún 29, 105 Reykjavík