Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Svavar Friðriksson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2018
svg
107 m²
svg
3 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta
svg
Laus strax

Lýsing

* LAUS VIÐ KAUPSAMNING*
FASTEIGNASALAN TORG KYNNIR: Eign í sérflokki, glæsilega 3ja herbergja íbúð á 6.hæð í nútímalegu og vel hönnuðu fjölbýli. Fallegt útsýni til vesturs. Tvennar svalir með svalalokun, tvö baðherbergi, gólfhiti er í allri íbúðinni og mikið skápapláss.  Allar upplýsingar veitir Dórothea fasteignasali s.898-3326, dorothea@fstorg.is

Samkvæmt FMR er eignin skráð samtals 107 fm, íbúðin 100,4 fm og geymsla 6,6 fm.
Eignin skiptist í anddyri og gang, baðherbergi með þvottaaðstöðu innaf, alrými með eldhúsi og stofu, svalir út frá stofu í vestur. Hjónasvítu með miklu skápaplássi og baðherbergi innaf, útgengi út á svalir í vestur frá hjónasvítu, barnaherbergi og sérgeymsla í sameign. Sérsmíðaðar innréttingar eru frá SCHMIDT.  Parket á gólfum og flísar á votrýmum.

Nánari lýsing: 
Komið er inn í forstofu með rúmgóðum fataskáp. Innaf forstofu er baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, flísalögð sturta með glerskilrúmi. Innrétting með speglaskápum fyrir ofan. Upphengt salerni og handklæðaofn. Innaf baðherbergi er þvottaaðstaða með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Eldhús er með rúmgóðri innréttingu í L. Innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur með frysti. Vínkælir í neðri innréttingu fylgir. Svart spanhelluborð og stálofn í vinnuhæð. Opin tækjaskápur og innbyggt útdraganlegt skurðarborð. Borðstofa er opin við eldhús og stofu. Frá stofu er útgengi út á svalir í vestur með svalalokun. Barnaherbergi án fataskáps. Rúmgóð hjónaherbergissvíta með fataskáp eftir heilum vegg, útgengi út á svalir í vestur með svalalokun. Innaf hjónaherbergi er baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf. Rúmgóð flísalögð sturta með glerskilrúmi. Upphent salerni og handklæðaofn. Innrétting með speglaskáp fyrir ofan.
Í sameign er sérgeymsla og sameiginleg hjóla-og vagnageymsla. Leigjendur geta tryggt sér afnotarétt af bílastæðum í bílakjallaranum gegn föstu mánaðargjaldi. Í bílakjallara er einnig golfhermir fyrir golfunnendur. https://www.tveirundir.is. Fallegur nýlega frágengin sameiginlegur garður. 
Hér er um að ræða einstaka eign í miðborginni í fallega hönnuðu fjölbýli við Höfðatorg, þar sem göngufæri er í flesta þjónustu og í fjölbreytileika Reykjavíkur. Allar upplýsingar veitir Dórothea E. Jóhannsdóttir fasteignasali, s.898-3326, dorothea@fstorg.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

 



 

Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
14. jún. 2018
27.200.000 kr.
68.900.000 kr.
107 m²
643.925 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone