Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1919
108,2 m²
2 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 11. júní 2025
kl. 17:00
til 17:30
Opið hús: Vatnsstígur 3, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 02 02. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 11. júní 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Eignamiðlun kynnir í einkasölu Vatnsstígur 3, 108.2 fm 2ja herbergja íbúð. Íbúðin er á 2. hæð í fallegu steinhúsi byggðu árið 1919 við Vatnsstíg 3 í Reykjavík. Húsið hefur allt verið endurnýjað fyrir um 15 árum. Skipt um allar lagnir, rafmagn, gler og glugga og o.fl. Húsið var málað að utan árið 2015.Íbúðin er 99,3 fm auk geymslu í kjallara sem er 8,9 fm. Íbúðin skiptist í anddyri, baðherbergi, eldhús, stóra stofu og svefnherbergi. Íbúðin er afar björt með stórum gluggum sem snúa útá Vatnsstíginn. Aukin lofthæð er í íbúðinni. Auðvelt er að bæta við svefnherbergi með litlum tilkostnaði.
***Smellið hér fyrir söluyfirlit***
Nánari lýsing eignarinnar:
Anddyri er með góðu fatahengi.
Baðherbergi er með sturtuklefa, upphengdu klósetti, handklæðaofn, vaskainnréttingu og spegli. Miele þvottavél og þurrkari fylgja með íbúðinni. Flísar á gólfi.
Eldhús er með góðri innréttingu með innbyggðri uppþvottavél og innbyggðum kæliskáp. Tveir ofnar eru og er annar gufuofn. Gashelluborð.
Stofa/borðstofa er opið rými með stórum gluggum sem snúa útá Vatnsstíg.
Svefnherbergi er stórt með góðum fataskápum. Útgengi er útá góðar svalir.
Fallegur svartur dúkur er á gólfum íbúðarinnar og gefur henni skemmtilegan svip. Innfelld lýsing er á hluta íbúðarinnar. Myndavéladyrasími er í íbúðinni.
Frábær eign sem vert er að skoða í miðborg Reykjavíkur. Unnið er að fegrun og endurnýjunar á götumynd Vatnsstígs og mun þeim framkvæmdum verða lokið í haust.
Nánari upplýsingar veitir Rögnvaldur Örn Jónsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6603452, tölvupóstur rognvaldur@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
4. sep. 2007
27.530.000 kr.
32.000.000 kr.
108.2 m²
295.749 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025