Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Snorri Sigurfinnsson
Loftur Erlingsson
Halldóra Kristín Ágústsdóttir
Steindór Guðmundsson
Vista
fjölbýlishús

Álftarimi 5

800 Selfoss

46.900.000 kr.

469.469 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2185275

Fasteignamat

45.150.000 kr.

Brunabótamat

47.150.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1989
svg
99,9 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Bílskúr

Lýsing

Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali s.896 9565 og Hús fasteignasala kynna í einkasölu:
Góð tveggja herbergja, 71,8fm íbúð á 3.hæð auk 4,4fm geymslu á jarðhæð og 23,7fm bílskúrs, samtals 99,9fm, í snyrtilegu fjölbýli miðsvæðis á Selfossi. 
Bílskúr og stórar suðursvalir með útsýni. Krambúðin, Fjölbrautaskóli Suðurlands og íþróttasvæði UMF Selfoss í næsta nágrenni.

Inngangur í íbúðina er af opnum svölum við hlið stigagangsins.
Forstofan er flísalögð og hengi þar fyrir yfirhafnir.
Þá miðrými með baðherbergi og svefnherbergi á vinstri hönd, stofu beint inn og eldhúsi til hægri.

Stofan er björt og rúmgóð og gengt út á stórar suðursvalir með miklu útsýni.
Eldhúsið með upprunalegri innréttingu og eldri tækjum og borðkrók.
Baðherbergið er endurnýjað að mestu, upphengt klósett, sturta með glerþili, handklæðaofn, upphafleg handlaug, stór skápur og pláss fyrir þvottavél. Flísar á gólfi og veggjum í og við sturtuna.
Svefnherbergið bjart og rúmgott, einnig gengt út á svalir þaðan og gott fataherbergi innaf. 
Gólfefni í íbúðinni eru harðparket og flísar á votrýmum. 
Á jarðhæð er sér geymsla auk sameiginlegrar hjólageymslu og þvotta- og þurrkherbergis. 
Bílskúrinn á enda blokkarinnar, flekahurð á honum og einkabílastæði eigandans fyrir framan.
Blokkin er í góðu standi að utan, en skipt var um þakjárn, pappa og sperrur árið 2023 og gert við múrskemmdir og blokkin máluð að utan árið 2024.
Ekki er lyfta í húsinu. 
--BÓKIÐ EINKASKOÐUN--

Nánari upplýsingar veitir Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali
s. 896 9565  -   loftur@husfasteign.is 


 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna:
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup)  lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Hús Fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita jafnvel til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 

img
Loftur Erlingsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
HÚS fasteignasala
Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum, Hlíðasmára 2 Kópavogi
HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum, Hlíðasmára 2 Kópavogi
img

Loftur Erlingsson

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum, Hlíðasmára 2 Kópavogi
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
4. jan. 2019
23.650.000 kr.
23.500.000 kr.
99.9 m²
235.235 kr.
3. ágú. 2016
15.500.000 kr.
16.400.000 kr.
99.9 m²
164.164 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum, Hlíðasmára 2 Kópavogi

Loftur Erlingsson

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum, Hlíðasmára 2 Kópavogi